Kraftur - 2023, Síða 13

Kraftur - 2023, Síða 13
B ls. 13 Grein „Þið eruð að fara að gera mig veika“ Ég greindist með mergæxli í lok október 2021, þá 37 ára gömul. Mergæxli er afar sjaldgæft hjá fólki undir fertugu og í mínu tilfelli var það langt gengið og búið að dreifa sér í eitlana, sem er almennt líka mjög sjaldgæft. Læknirinn minn telur því líklegt að ég hafi verið með sjúkdóminn í mörg ár, án þess að ég fyndi fyrir einhverjum teljandi einkennum. Ég man vel eftir sterkri óraunveruleikatilfinningu í öllum þeim mismunandi aðstæðum sem fylgdu greiningunni og fyrstu vikunum í lyfja með- ferð inni. Ég átti til að mynda mjög erfitt með að meðtaka skilaboðin frá einum lækninum þegar ég var ný greind og hann sagði að ég væri með „mikinn sjúkdóm“. Ég yrði því að hafa samband við spítalann strax ef ég fyndi fyrir minnstu ein- kennum. „Ég man að ég hugsaði: En ég er ekkert veik. Ég verð aldrei veik. Þið eruð að fara að gera mig veika. Svo óraunverulegt var þetta allt.“ Það var líka ómögulegt að horfast í augu við það sem internetið sagði mér: Að krabbameinið væri ólæknandi og ég myndi deyja eftir sirka tvö ár. Ég trúði því en vildi á sama tíma alls ekki trúa því. Það var því mikill léttir þegar læknirinn minn sagði mér að ég ætti alls ekki að trúa því sem ég læsi á internetinu um lífslíkur: Tölfræðin væri úrelt auk þess sem ég væri svo ung að hún ætti hvort sem er varla við mig. Yfirgnæfandi líkur væru á því að ég myndi lifa miklu, miklu lengur en í tvö ár þar sem mögulegt er að halda mergæxli niðri með góðum árangri. Smám saman fór ég því að líta á framtíðina sem raunveruleika í staðinn fyrir draum sem myndi aldrei rætast. Hvernig ætlið þið að bjarga mér? Núna eru liðnir um 18 mánuðir síðan ég greindist og ég er í því sem kallað er „full- komið sjúk dóms hlé“. Það þýðir í raun að lyfja- með ferðin sem ég fór í og tók um átta mánuði, og stofnfrumumeðferðirnar tvær sem ég fór í með fjögurra mánaða millibili hafa skilað hámarksárangri. Engin merki finnast um virkan sjúkdóm en þar sem mergæxli er ólæknandi þarf ég viðhalds meðferð um ókomin ár til að halda meininu niðri. Á heildina litið hef ég fengið framúrskarandi þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Ég hef hins vegar ekki alltaf treyst því og tortryggnin náði hæstu hæðum um það leyti sem þyngsti hluti meðferðarinnar var að hefjast. Vinkona mín lést um miðjan ágúst og tæpum fjórum vikum síðar lagðist ég inná 11G, blóðlækningadeild Landspítalans. Planið var svona: Fara í háskammtameðferð á miðvikudegi, gista þá nótt á spítalanum með vökva í æð allan tímann, fá stofnfrumurnar mínar B ls. 13 Kraftur

x

Kraftur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.