Kraftur - 2023, Síða 28
Kraftur
Fögnum nýju &
kraftmiklu starfsfólki
Aðalheiður Dögg Finnsdóttir, alltaf kölluð Heiða,
er viðburðar- og fjáröflunarfulltrúi Krafts. Hún sér
um vefverslun félagsins, vöruþróun og framleiðslu,
perluviðburði og margt fleira. Aðalheiður hefur
mikla reynslu úr félags- og menningargeiranum.
Hún var áður framkvæmdastjóri Myndstefs,
höfundaréttarsamtök sjónlistamanna, og útgáfu-
og viðburðar stjóri Stockfish kvikmynda hátíðar-
innar. Eitt af helstu áhugamálum Heiðu er að
ferðast, tala erlend tungumál og hundar, en
hundurinn hennar Indriði þykir henni bestur.
Ef það er eitthvað sem hún þolir ekki þá er það
óheiðarleiki og rok, og móttó-ið hennar er: „Allt
hefst með góðu skipulagi.“
„Eftir að hafa verið aðstandandi nákomins
fjölskyldu meðlims sem gekk í gegnum krabba-
meins meðferð veit ég hversu mikilvægt það er
að hlúa að krabba meinsgreindu fólki og öllum
aðstandendum, og þar kemur félag eins og
Kraftur sterkt inn. Mér finnst mikilvægt að hafa
raunveruleg áhrif og hjálpa fólki í starfi mínu. Ég
vona að ég sé að gera það vel hjá Krafti,“ segir
Heiða.
Umfjöllun
B
ls
.2
8
Þórunn Hilda Jónasdóttir, Tótla, er markaðs- og
kynningarfulltrúi Krafts. Eins og titillinn gefur til
kynna annast hún markaðs- og kynningarmál
félagsins og sér til þess að halda vefnum okkar
og samfélags miðlum lifandi ásamt því að svara
fyrir spurnum, senda afmæliskort, vera í sam-
skiptum við hina og þessa og allt hitt sem til fellur í
starfsemi félagsins. Tótla hefur verið viðburðastjóri
í markaðs deild Háskólans í Reykjavík, markaðs -
stjóri hjá KR og framkvæmda stjóri Lífs styrktar-
félags fyrir kvennadeild LSH. Móttó-ið hennar er:
„Það á að vera gaman því annars er bara leiðinlegt”
og helsta áhugamál er að kúra upp í rúmi með
kettinum Nölu að horfa á Dr. Martin eða skoða
heilsu samlegar uppskriftir sem hún býr svo aldrei
til. Ef það er eitthvað sem hún þolir ekki þá er það
að ákveða hvað á að vera í matinn.
„Ég hef verið viðloðandi góðgerða geirann í fjölda
ára og alltaf fylgst vel með Krafti enda magnað
starf sem á sér stað hér. Ég vona bara að ég geti
sett mitt mark á félagið og viðhaldið því flugi sem
Kraftur er á,“ segir Tótla.
Tveir kraftmiklir starfsmenn byrjuðu af krafti hjá félaginu í vetur og
hafa svo sannarlega látið mikið til sín taka. Þær eru alltaf með puttann
á púlsinum og tilbúnar að leggja sig fram af lífi og sál fyrir félagið og
félagsmenn okkar. Kynnumst þeim aðeins.
Aðalheiður Dögg
Finnsdóttir
Þórunn Hilda
Jónasdóttir