Úrval - 01.06.1944, Qupperneq 10
8
ÚRVAL,
eru í dönsku skýrslunni og
getið er hér að firaman, munu
þó eiga við, hva-r sem er. Getum
við því reitt okkur á, að sömu
veðurfarsbreytingar munu
eixmig fylgja skjólinu hér á
iandi.
Það hefur ennfremur sýnt
sig, þar sem skjóli hefur verið
komið upp á stórum landsvæð-
um erlendis, að eftir að skjólið
kom, tók fyrr að vora. Munaði
það allt að hálfum mánuði.
Skjólið hafði einnig mikil áhrif,
á sumarhitann. Dagarnir urðu
töluvert hlýrri en áður, þannig
að meðalhiti sumarsins jókst
um nálægt % C°. Það væri ekki
iítill hagnaður fyrir íslenzka
jarðrækt, ef hægt yrði að lengja
þannig sumarið og fá um leið
hærri meðalhita yfir sumar-
mánuðina. En þetta er mögu-
legt, ef komið er á fót samfelldu
neti af skjólgörðum eða skógum
í heilum héruðum á landinu.
Val trjáa í skjólgarðana er
fyrst og fremst háð loftslaginu,
þannig að einungis eru valdar
trjátegundir, sem reynzt hafa
harðgerðar í umhverfinu. Geta
það verið lauftré eða barrtré.
Lauftrén eru fljótari að vaxa
og ná yfirleitt hærri aldri.
Barrtré veita aftur á móti skjól
bæði vetur og sumar og gera
minni kröfur til jarðvegsins.
Niðurskipan trjánna í skjól-
beltinu er þannig hagað, að
beltið taki sem minnst á sig.
Yztu trén verða að vera lág-
vaxin og stormþolin. Skjólbeltið
á að lyfta vindinum, en ekki
standa sem veggur, er stormur-
inn brotnar á. I miðju skjól-
beltinu þurfa trén að verða há-
vaxin, svo að skjólsins gæti sem
lengst inn á hið skýlda svæði,
en innstu raðirnar ættu að vera
lágar og laufríkar, svo að ekki
næði í gegn.
Skjólbelti eru að jafnaði
nauðsynleg fyrir verstu vind-
áttunum. Breiddin ákvarðast af
því, að trén í miðju beltinu
þurfa að fá það skjól af ytri
röðunum, að þau geti vaxið
upp í líka hæð og náð viðlíka
þroska og þeim er eðlilegur inni
í skógi. Líklegt er, að venjulega
nægi 5 til 8 raðir með um
tveggja metra millibili, en þó
getur sums staðar orðið nauð-
synlegt að planta fleiri röðum,
jafnvel allt upp í 15.
Er skjólbeltin hafa nú brotið
stormmn á bak aftur, er
nauðsynlegt að viðhalda skjól-
inu inni á skýlda svæðinu. Til
þess nægja jafnan einfaldir