Úrval - 01.06.1944, Blaðsíða 64
62
tJRVAL
reyna geðveikralækningar sínar
á mér til þess að mega nokkuð
vera að því að deyja.
Vissulega var Porter ekki
eins dauðalegur, þegar ég heim-
sótti hann. Hann var úti á
pallinum og las bók um liðagigt,
og hann hló í rauninni, þegar
hann sagði mér, að hann hefði
gert sér upp þessa hnignun til
þess að fá Gray til að nota
hækjur sínar. „Ef ég tóri annan
vetur skal ég koma Gray úr
hjólastólnum fyrir fullt og allt,“
sagði hann.
Porter „tórði“ þennan vetur
— 18 í viðbót. Þriðja veturinn
hafði Gray farið rmdursamlega
fram — svo mjög, að hann
giftist hjúkrunarkonu sinni. Og
um það leyti sem hinn fyrsti
hinna ágætu, heilbrigðu sona
Grays fæddist, hafði Porter
aftur tekið til starfa og var á
hraðri leið með að verða sá
geðveikralæknir, sem menn
helzt ráðguðust við í þessum
hluta Suðurríkjanna. Hann og
Gray (sem aldrei varð nægilega
heilbrigður til að halda áfram
skurðlækningum) héldu uppi
mestum hluta hinnar skipulögðu
hjálparstarfsemi borgarinnar.
Þegar Porter og Gray dóu —
með fárra mánaða millibili,
missti þjóðfélagið tvo af sínum
ástsælustu þegnum.
Hvor um sig þakkaði sér,
í einkasamræðum við mig, fyrir
að hafa hjálpað hinum til að
lifa sönnu lífi í 19 ár í viðbót.
Hvor um sig, þakkaði hinum
lækningu sína opinberlega og í
einkasamræðum. Hvorugan
þeirra — ekki einu sinni Porter,
geðveikralækninn, sem hefði þó
átt að að geta ímyndað sér það
— grunaði nokkurntíma, að
með því að gleyma sjálfum sér
í tilraunum til að hjálpa hinum,
hafði hvor þeirra um sig læknað
sig sjálfur.
V
j BREZKA FLOTANUM er aðeins einn tundurspillir, sem er
af svo gamalli gerð að hann hefir þrjá reykháfa. Það er
tundurspillirinn S k a t e. Fyrir nokkru stöðvaði hrezkt beiti-
skip tundurspilli þennan og spurði með merkjum: „Hvaða skip
eruð þér?“
Skipstjóri S k a t e fannst sér misboðið, því að hann lét svara
á merkjamáli: „Leynivopn Churchills". — Birt Darling.