Úrval - 01.06.1944, Side 106
104
tJRVAL
kjöti einu eða spiki, og hann er
nú bráðum 65 ára og er maður
fílhraustur. Hann bendir einnig
á reynslu eskimóa, sem alla ævi
búa við sömu lífskjör.
Hann hefir dvalið samtals um
■
10 ár meðal eskimóa, og hann
er sannfærður um að þeir séu
•sælli og hraustari en fólkið á
Suðurhafseyjum. „Á ferðalög-
um mínum saknaði ég einskis,
nema hijómlistar og bóka,“
segir hann sjálfur. Eskimóum
batzt hann einlægri vináttu.
Hann lærði mál þeirra og um-
gekkst þá sem jafningja sína.
Eigi hyggur hann að menningin
geti gert þá hamingjusamari.
„Eskimói hlær meira á viku en
hvítur maður á heilum mánuði,“
hefir hann sagt í einni af bók-
um sínum.
y'ILHJÁLMUR STEFÁNS-
v SON dvelur nú í New York,
•tæplega 65 ára gamall, tein-
réttur og kraftalegur með
hrukkur 1 andliti og gráleitt
hár. Hann á 20000 bindi bóka
um heimsskaut og heimsskauta-
rannsóknir, og er það meira
safn um þau efni en saman er
komið í bókasafni Bandaríkja-
þings eða í safni heimsskauta-
stofnunarinnar í Leningrad. Úr
þessu bókasafni hefir hann
dregið saman fróðleik í 19
binda alfræðibók um heims-
skautsmál, sem hann notar í
eigin þarfir. Hann hefir hlotið
margvíslegan heiður frá öllum
menntalöndum, en óbrotgjarn-
astur mun sá minnisvarði, er
hann hefir reist sér sjálfur með
bókum sínum.
Hann hefir óneitanlega unnið
að minnsta kosti eitt mikið af-
rek. Hann hefir rannsakað
heimsskautslöndin svo vel, að
því verki er komið mjög langt
áleiðis. Nú er rannsóknum svo
langt komið, að landnám norð-
urhjarans er hafið.
*
JyjAÐUR kom inn á drykkjukrá og bað um Martinikokkteil,
drakk hann, beit siðan ofan af glasinu og fleygði stéttinni
aftur fyrir sig. Þessu hélt áfram sex sinnum, og tók þá maðurinn
eftir þvi þjónninn horfði undrandi á hann.
,,Þér haldið náttúrlega að ég sé geggjaður," sagði hann.
„Auðvitað," svaraði þjónninn. „Stéttimar af glösunum eru
beztar." —