Úrval - 01.06.1944, Blaðsíða 128
126
ÚRVAL
meira gagns, ef hann gæti hald-
ið áfram að lifa og gera tilraun-
ir sínar, án afskipta Rann-
sóknarréttarins. Hann var sam-
mála kóraninum um það, „að
blek lærdómsmannsins og blóð
píslarvottsins er jafndýrmætt
augum drottins.“
En þrátt fyrir varkámina,
átti það fyrir Galileo að liggja,
að verða píslarvottur ekki síður
en spekingur, því að Rannsókn-
arrétturinn var sívakandi og
réði lögum og lofum í héraðinu
umhverfis Flórens. Bellar-
mine kardináli, yfirmaður
Rannsóknarréttarins, hafði
veitt því athygli, að þó að Gali-
leo minntist ekki á hreyfingu
jarðarinnar umhverfis sólina,
þá hafði hann þó lýst sig fylgj-
andi kenningum Kopernikusar.
Hinn 26. marz, 1616, var Gali-
leo því skipað að mæta fyrir
Réttinum.
Þegar Gaiileo var mættur,
ráðlagði Bellarmine kardináli
honum, að „segja skilið við hin-
ar heiðnu skoðanir um jörðina,
sólina og stjömumar.“ Hann
átti hvorki að hugsa slíkar
hugsanir, kenna þær né verja
þær, munnlega eða skriflega,
„ef hann vildi komast hjá of-
sóknum.“
Galileo, „með dauða í sál
sinni,“ undiritaði afneitun sína
og Iofaði að hlýða. Og kardi-
nálinn lét hann lausan með sig-
urbros á vörum. Með einni
strangri fyrirskipun hafði hann
stöðvað hringrás reikistjam-
anna umhverfis sólina.
En Galileo sneri aftur tii
Flórens, kjarklaus og fullur af
blygðunarsemi. Um skeið hélt
hann áfram tilraunum sínum í
kyrrþey og þorði ekki að skýra
heiminum frá uppgötvunum
sínum. En snilligáfu fylgir
jafnan þörfin að láta skoðun
sína í Ijós á sama hátt og fræ
er gróðursett, til þess að það
vaxi. Þegar stundir liðu fram,
veittist Galileo ókleift að dylja
hugsanir sínar. Hann birti aðra
bók um stjörnufræði og féll
aftur í ónáð. Ennþá einu sinni
var honum skipað að mæta
fyrr Rannsóknarréttinum — og
í þetta sinn var kæran miklu
alvarlegra eðlis en í fyrra
skiptið. Nú var hann kærður
fyrir ítrekun brots, sem refsað
hafði verið fyrir áður. Við slík-
um glæp var lögð dauðarefsing.
Þegar Galileo barst þessi síð-
ari stefna, var hann sjúkur.
Læknar hans gáfu vottorð þess
efnis, að hann væri rúmliggj-