Úrval - 01.06.1957, Page 13

Úrval - 01.06.1957, Page 13
OPINBERUN ÚRVAL ungi, sem var í framan eins og rottuhundur; hann belgdi sig allan út til þess að láta sem mest á sér bera. „Annan eins kvenmann sér maður ekki á hverjum degi. Hún er víst frönsk í aðra ættina. Þegar hún er á ferðinni líkjast kerlingarn- ar okkar einna helzt blautum og ráðlausum hænsnahóp. Það er eithvað við hana, sem þær vantar alveg.“ „Ekki vildi ég skipta á henni og konunni minni,“ sagði sá elzti þeirra efablandinn. „Hún er ekki mitt meðfæri. Eg er viss um, að hún er eins og slæg hryssa heima fyrir.“ GOMER þagði. Hann hafði kvænzt seinast þeirra allra og hann langaði ekkert til að blanda sér í þessar umræður, þó hann hefði af nógu að taka. Eg held nú það! Hann gat sagt sitt af hverju — og sumt ófagurt. En hann sagði það ekki; hann beit bara á vörina og augu hans leiftruðu meðan hinir létu dæl- una ganga, eins og karlmanna er siður, um það sem þeir ætl- uðu að taka til bragðs, ef kerl- ingin væri eitthvað óstýrilát við þá. Hann hafði verið kvænt- ur í eitt ár, og stöðugir árekstr- ar í hjónabandinu, milli hans og Blodwen, höfðu hleypt illu blóði í hann. Hann hefði aldrei trúað því að óreyndu, að kven- fólk gæti verið svo þrætu- gjarat. Hún, sem hafði verið svo bllð og góð við hann, áður en þau giftu sig . . . En nú skyldi hann ná sér niðri á henni . . . Og um leið hjó hann járn- uðum stígvélunum harkalega niður í gangstéttina. ÞEGAR þeir komu að löng- um, dapurlegum röðum verka- mannabústaðanna, skildu þeir og héldu hver heim til sín. Gom- ei' bjó í yztu röðinni, sem stóð kippkorn uppi í grágrænni fjallshlíðinni. Við endann á þeirri röð stóð einstakt hús, alveg út af fyrir sig. Þar átti yfirverkfræðingurinn heima. Gróðurvana fjallshlíðin náði alveg niður að byggingunni, og áður en Gomer gat klöngrast þar upp, varð hann að fara fram hjá húsinu sínu. Þetta var á sólbjörtum sum- ardegi, seinni hluta dags, og í blækyrru loftinu var mild hita- móða. Gomer fór að hugsa um, hvað það hefði verið gaman að hafa þarna bugðótta og kyrrláta hliðargötu með skugg- sælum trjám og silfurtærri á einhvers staðar í nágrenninu. Hann hefði sannarlega notið þess að fá sér þar kvöldgöngu, einn og ótruflaður. En það var nú öðru nær — strax og hann var búinn að þvo sér og borða, var ekki um aðra staði að ræða en krána á götuhorninu eða gróðurlausa, ömurlega fjalls- hlíðina. Hvílík ævi! Gomer and- varpaði. Alltaf það sama dag eftir dag. Niður í námuna, upp úr henni aftur, heim að borða u
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.