Úrval - 01.06.1957, Síða 15

Úrval - 01.06.1957, Síða 15
OPINBERUN UKVAL Hun var eins og stór, hvítur fugl, sem hefur sig til flugs. „ . . . Og bað mig að segja, að hann gæti ekki komið heim fyrr en klukkan átta . . .“ kall- aði Gomer skyndilega inn í tóma forstofuna. Hann beið síundarkorn og velti því fyrir sér, hvort hún mundi svara honum. Hann heyrði hana ganga um uppi á loftinu og rétt á eftir birtist hún aftur, sveipuð í einhverja bláa, flík, sem virtist heldur losaraleg. Það var roði í kinn- um hennar, þegar hún gekk niður stigann, en er hún kom nær fór hún að hlæja. Hún hló svo innilega, að Gomer fann blóð sitt ólga. Blygðun átti hún ekki til. Hvítir fætur henn- ar voru enn berir — berir og hljóðlausir. „Hvað voruð þér að segja um manninn minn?“ spurði hún án þess að láta sér bregða. Gomer flutti henni skilaboð- in. Kinnar hans voru brenn- heitar undir óhreinindalaginu á andlitinu. Hún þakkaði honum ajúðlega fyrir og bætti svo við: „Eg hélt, að hann væri að koma áðan. Ég var í baði. Þér skiljið mig áreiðanlega. Þér eruð sjálfur kvæntur, er það ekki?“ Gomer kinkaði kolli. Hún horfði beint framan í hann og brosti kankvíslega. Síðan sagði hún: „Jæja — svo þakka ég yður enn einu sinni fyrir skiTáboð- in. Þér voruð vænn að gera mér þennan greiða.“ Svo fór hann, og dyrnar lok- uðust að baki hans. Hann gekk niður garðstíginn forviða og eins og hálf utan við sig. Hann hafði aldrei fyrr séð nakta konu. Ekki lifandi, aðeins á mynd. Það höfðu alltaf verið óskráð Iög, að sómakær eigin- kona væri manninum eins kon- ar hulinn leyndardómur. En var það sanngjarnt? Áttu þær að vera svo dularfullar, þegar þær á annað borð voru svona fallegar ? Frú Montague var vissulega sómakær kona.. Og eins var með manninn henn- ar. Hann myndi aldrei sam- þykkja neitt, sem ekki var rétt . . . Gomer varð skyndi- lega sannfærður um, að, það væri konunni alveg eðlilegt að taka á móti manni sínum alls- nakin. Auk þess var það svo Ijómandi skemmtilegt. Um leio og hann opnaði garðs- hliðiö kom hann auga á rós, fast við girðinguna. Stór, rauð blómin freistuðu hans. Hann teygði sig yfir, strax og hann var kominn út fyrir, og sleit eitt þeiri-a af stilknuin. Það tæki enginn eftir því. Hann stakk blóminu í brauðkassann sinn. Gomer skálmaði þrjózkulega heim til sín. Nú ætlaði hann að semja frið við Blodwen. En hann ætlaði e.kki að skríða fyr- ir henni. 'Þegar á allt var lit’ið var húrí þo konan hans, og hánn Vár ekki kröfuharður eiginríiáð'-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.