Úrval - 01.06.1957, Side 30

Úrval - 01.06.1957, Side 30
ÚRVAL drukkið áfengi, þjáði mig sekt- arvitund, sem lýsti sér í þung- lyndi. Ég var einmana vera í varnarstöðu gagnvart fjand- samlegum heimi. Mér fannst heimurinn ekki kæra sig um mig, að allir menn væru á móti mér. Ég hefði átt að vera fullur tilhlökkunar, því að ég var á leið til Topekaborgar, til að viða að mér efni í bók, sem ég ætl- aði að skrifa um dr. C. F. Men- ninger, hinn mikla brautryðj- anda og mannvin, sem með starfi sínu hafði dregið þús- undir manna upp úr díki brjál- seminnar. 1 stað þess var ég fullur örvæntingar og beiskur út í allt og alla. Mig furðaði á, að Menninger skyldi hafa getað lifað í þeirri blekkingu í 91 ár, að lífið væri gott og fagurt. Skyndilega kom ég að dálítilli beygju á veginum og hrökk upp af þessum ömurlegu hugsunum. Bíllinn lét ekki að stjórn. Ég stöðvaði hann, og þegar ég kom út úr honum sá ég að krapinn hafði hlaðizt undir aurbrettin og myndað íshellu beggja megin við hjólin, svo að ekki var hægt að snúa þeim. Með skrúflykli tókst mér á klukkutíma að brjóta ísinn frá hjólunum, en þá var ég orðinn örmagna. Mér var þungt um andardrátt eftir að ég var seztur við stýr- ið. Allt í einu var eins og rif- beinin í mér herptust saman líkt og krepptur hnefi, og sáran verk lagði út í vinstri handlegginn. BORGIN HJARTAHLl'JA Ég stöðvaði bílinn og greip and_ ann á lofti. Gráguggið andlitið sem ég sá í bílspeglinum, virt- ist vera farið að blána. (Seinna var mér sagt, að það sem kvöl- unum olli, hafi verið ónógt blóð- rennsli til hjartavöðvans.) Vegurinn var auður svo langt sem sá; ég varð að aka áfram. Þrjózkufullur vilji til að lifa, hlýtur að hafa borið mig til næstu borgar. Ég man að- eins, að mér fannst það kald- hæðni örlaganna, að hún skyldi heita Garðbær, og að við veg- inn inn í hana skyldi vera spjald sem stóð á „Velkominn til Garð- bæjar“. Hið næsta sem ég man er, að einhver hjálpaði mér inn í lítið hús þar sem bjó ungur læknir. Fjölskylda hans og nokkrir gestir voru að setjast að kvöld- verði. Ég kvaðst geta beðið, en læknirinn bannaði mér að tala. Hann svo gott sem bar mig upp í svefnherbergið sitt og lagði mig á mjallhvítt rekkjulínið í fötum og skóm. Konan hans hjálpaði honum til að færa mig úr jakkanum og skyrtunni. Hann skoðaði mig nákvæm- lega. Mér var nú svo algerlega þorrinn máttur, að ég þráði mest að öllu væri lokið; mér fannst það mundi vera betra að deyja hér í þessu herbergi en úti á þjóðveginum. Pillu var rennt undir tunguna á mér og einhverju dælt í æð. Eftir aðra inndælingu hurfu kvalirnar og ég sofnaði. 28
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.