Úrval - 01.06.1957, Page 53
OFURKAPPI Á FL/UGI
ÚRVAL
mæta, sem Zeppelínin og flug-
vélarnar ollu. Og eftir stríðið,
þegar hundruð flugmanna létu
lífið í nýju, skefjalausu kapp-
Iilaupi um met, varð sérhvert
dauðsfall til þess að þyngja
byrðina á samvizku hans.
Árið 1928 hvarf hann heim
til Brasilíu. Stór sjóflugvél,
Santos-Dumont, flaug til móts
við skip hans. Hún hrapaði í
sjóinn og allir í henni fórust.
,,Enn fleiri lífum fórnað mín
vegna,“sagði Santos harmi lost-
inn.
Næstu mánuði gerðist Santos
æ fátalaðri. Þegar brezka loft-
farið R-101 fórst í Frakklandi
1930 og 48 manns lítu lífið, gerði
hann tilraun til að svifta sig
lífi. Honum var bjargað á síð-
ustu stundu og eftir það var
hann undir stöðugri gæzlu syst-
ursonar síns, Jorge Dumont
Villares.
Árið 1932 brauzt út bylting
í Sao Paulo og Vargas forseti
sendi flugvélar til að varpa
sprengjum á borgina. Drunurn-
ar í flugvélmium uppi yfir hót-
elinu sem Santos bjó í, gerðu
hann næstum vitstola. Og þegar
hann frétti, að brasilískir flug-
menn væru að varpa sprengjum
á samlanda sína, fór hann inn
í baðherbergið sitt og þar tókst
honum að hengja sig í háls-
bindinu sínu.
Það má teljast kaldhæðni ör-
laganna, að með dauða sínum
færði hin aldna flughetja landi
sínu frið: Santos var svo ást-
sæll bæði af uppreisnarmönnum
og stjómarsinnum, að þeir
gerður klukkustundar vopnahlé
til að heiðra minningu hans.
★ ★ ★
Sárabót.
Maður nckkur var að lesa dánarfregnir í morgunblaðinu sínu
og sér þar nafn sitt, með heimilisfangi og titli, svo að ekki var
um að villast. Hann hringdi þegar i stað í ritstjóra blaðsins
og setti rækilega ofan í við liann fyrir að tilkynna lát sitt
þannig að ástæðulausu.
,,Mér þykir þetta á.kaflega leitt," sagði ritstjórinn, ,,en það
er of seint að gera nokkuð, blaðið er komið' út.“
„Er þetta það eina sem þér getið sagt? sagði hinn „látni".
„Þér verðið að gera eitthvað, maður."
„Það er eitt sem ég get gert,“ sagði ritstjórinn rólegur. ,,Við
höfum dálk fyrir fæðingartilkynningar. Eg get sett nafnið
yðar þar í fyrramálið, og þá. byrjið þér nýtt lif.“
— Veldt Breezes.
51