Úrval - 01.06.1957, Síða 56
ÚRVAL
BOOMERANG — HTÐ ÁSTRALSKA KASTVOPN
bráðfimur með þetta leikfang
sitt; ég hef séð átta ára dreng
drepa páfagauk á grein í nærri
30 mera fjarlægð.
En fullgilt boomerangskeyti
fær hann ekki fyrr en hann er
fullorðinn. Undir leiðsögn
reynds manns velur hann sér
grein á tré, sem myndar hæfi-
lega stórt hom við stofninn, og
heggur hana af með steinöxi,
ásamt fleyg úr stofninum, og
telgir hana vandlega til. Þegar
hann hefur gufusoðið hana yfir
eldi þangað til hún er orðin lin
og sveigjanleg, vindur hann
hæfilega upp á blöðin. Þetta er
margra klukkutíma verk og tek-
ur margar vikur.
Hinn ungi piltur notar skeyti
sitt einkum til að veiða fugla.
Þegar hópur fugla, endur, páfa-
gaukar og dúfur, hefja sig til
flugs, kastar hann skeytinu,
sem flýgur í sveig upp á við á
eftir hópnum. Ég hef séð fjóra
fugla falla til jarðar samtímis
fyrir einu skeyti.
• •'* ..
Stundum strengja veiðimenn-
irnir net úr vafningstágum á
milli árbakka. Þegar andahópur
flýgur upp ána, kastar einn
veiðimanna boomerang upp fyr-
ir hópinn og líkir samtímis eftir
gargi hauksins. Endumar halda,
að skeytið yfir þeim sé haukur
og steypa sér skelfdar niður á
vatnið, en þar flækjast þær 1
netinu.
Margir aðrir Ástralíumenn en
frumbyggjamir hafa tekið ást-
fóstri við þessa þjóðlegu íþrótt.
Meðal þeirra er fyrrverandi for-
stöðumaður læknaskólans í Sid-
ney, Harvey Sutton prófessor,
sem stendur ekki að baki nein-
um frambyggja í leikni með
boomerang. Annar er Frank
Donnellan, prentari í Sidney,
sem lærði listina af frambyggj-
um þegar hann var drengur.
Metkast hans er 145 metrar;
skeytið flaug umhverfis tré og
til baka aftur. Á undanfömum
árum hefur Donnellan ásamt
fimm öðrum hvítum mönnum,
háð sveitarkeppni við margar
sveitir innborinna manna og allt
af farið með sigur af hólmi.
Donnellan hefur reynt að gera
boomerang úr ýmsum efnum, og
nýlega mótaði hann eitt úrplasti
og er hægt að framleiða það í
stórum stfl. Hann hefur selt
boomerang til margra landa,
og draumur hans er sá, að
boomerangkast verði viðurkennt
sem alþjóðleg íþróttagrein. Því
að það er unun að horfa á boom-
erang sem vel er kastað, sjá
hvernig það flýgur í sveigum,
ýmis upp eða niður, eins og fálki
í veiðihug. Er ekki að efa, að
boomerangkast mundi verða
mjög vinsæl íþróttagrein.