Úrval - 01.06.1957, Qupperneq 59
ÁKVÖRÐUN MÍN
ÚRVAL
leysi sem lýsti sér í viðleitni
hans til að skilgreina og skýra
þetta allt sem „persónudýrk-
un“ — orð sem er innantómt
og næstum gamansamt í skorti
sínum á tengslum við þá at-
burði sem því er ætlað að lýsa.
Einn forustumaður kommún-
ista meðal menntamanna í
Frakklandi, sem lesið hafði
greinargerð mína í Daily Wor-
ker, skrifaði mér beiskyrt
bréf þar sem hann ásakaði
mig fyrir að gefa upp knött-
inn fyrir óvini okkar. „Eins
og þú hlýtur að hafa lesið
í blöðunum," skrifaði hann,
„hefur Kommúnistaflokkur
Frakklands hvatt Kommúnista-
flokk Sovétríkjanna (SUKP),
eftir að borgaralegu blöðin
höfðu birt skýrslu þá sem til-
einkuð er félaga Krutsjov, til
þess að koma með fullkomnari
fræðilega skýringu á þeim al-
varlegu mistökum, sem tileinkuð
eru félaga Stalin. SUKP birti
þá yfirlýsingu, sem einmitt fól
í sér þessa fræðilegu skilgrein-
irxgu og er hin mikilvægasta
heimild fyrir hvern þann sem
berst fyrir málstað verka-
manna, yfirlýsing sem gert
hefur verkalýðsfloklcunum
kleift að endurmeta á heil-
brigðan hátt þær hugmyndir
sem hér um ræðir.“
Guð hjálpi okkur!
Ég neita því ekki, að ég get
aldrei orðið sá sem ég var áður
en ég las þá skýrslu. Eitthvað
brast innra með mér og hætti
að vera til. En ég beið í níu
mánuði áður en ég tók það
skref sem ég er að skýra hér.
Ég beið vegna þess að hér var
um að tefla alla tilveru mína og
vonir og einnig tilveru og von-
ir margra góðra vina minna.
Ég beið einnig vegna þess að
vinir sem ég bar virðingu fyrir
sögðu sem svo:
„Það er að sjálfsögðu betra
að gera sér ljósa grein fyrir
þessum málum en að lifa í
sjálfumglaðri fáfræði um þau.
En mundu, að það eru sovét-
leiðtogarnir sjálfir, sem hafa
dregið þau fram í dagsljósið.
Nú mun ástandið breytast.
Stalin er dáinn. Nýir leiðtogar
eru komnir til valda. Þeir
hljóta að breyta til.“
Það var að minnsta kosti
von — von um að Sovétríkin
hæfu á loft merki hins sósíalis-
tíska lýðræðis og sýndu ef til
vill viðleitni til að endur-
heimta þá siðgæðisforystu,
sem þau höfðu gloprað úr
höndum sér.
Árangurinn af þessari níu mán-
aða bið varð að áliti Pasts þessi:
Fyrst kom í Ijós, að „leyniræðan"
hafði ekki opinberað allt; sannleik-
urinn um útrýmingu hinna beztu
pólsku kommúnista 1939 vitnaðist,
einnig sannleikurinn um ,,það sem
varð um hina gyðinglegu menningu
i Sovétríkjunum." Þar næst bárust
fréttir frá Sovétríkjunum um tvö
málaferli enn, sem lauk með dauða-
refsingu; Krutsjov innleiddi nýja
tegund af diplomatí, „diplomatí
móðganga og ruddaskapar;" í Mið-
austurlöndum var tekin upp utan-