Úrval - 01.06.1957, Síða 68
ÚRVAL
framleiða þau hormón, sem
gera það að verkum að þú breyt-
ist úr dreng í fullorðinn mann,
og kirtlarnir í mér eru að hætta
að starfa. Ég er á því skeiði
ævinnar þegar konan hættir að
geta átt börn. Meðan á hvoru-
tveggja þessu stendur — það
tekur langan tíma, kannski 2—3
ár — er skapið óvenju erfitt.
Maður rýkur upp og er næmur
fyrir öllu og heldur að allir séu
á móti sér. Hlustaðu nú á,
væni minn, við verðum að reyna
að hjálpa hvort öðru, við verð-
um að reyna að skilja þær nátt-
úrlegu líffræðilegu orsakir sem
liggja að baki þessara persónu-
legu skapgerðarerfiðleika okk-
a,r. Við verður að reyna að ná
valdi yfir kirtlum okkar.“ Eft-
ir þetta skynsamlega samtal
batnaði sambúðin á heimilinu.
En kvöld eitt lá eldri sonurinn
lengur fram eftir og las í rúm-
inu en hann mátti, og var það
þeim mun vítaverðara sem þetta
var á stríðsárunum þegar raf-
magnsskömmtun var ströng.
Móðirin komst á snoðir um
þetta, rauk upp í drengjaher-
bergið og ávítaði drenginn
harðlega fyrir óhlýðnina. Þá
reis yngri drengurinn upp, leit
svefndrukknum augum á móður
sína og síðan á brðður sinn og
sagði: „Skiptu þér ekki af því
þó að mamma sé að rífast —
það eru bara kirtlarnir, eins og
þú veizt.“
Þessi lærdómsríka saga úr
hversdagslífinu á fyrst og
UNGLINGAR Á GELGJUSKEIÐI
fremst að vera dæmi um hvern-
ig dugleg og skynsöm móðir fer
að því að hjálpa syni sínum á
gelgjuskeiðinu. Fræðsla er það
sem mestu varðar — fræðsla í
stað siðferðilegra umvandana.
Ég ætla því með nokkrum orð-
um að gera grein fyrir því sem
gerist þegar drengur eða stúlka
breytast úr barni í fullorðinn.
Frá ómunatíð hafa menn vit-
að, að gelding, þ. e. brottnám
kynkirtlanna áður en einstak-
lingurinn nær kynþroska aldri,
hefur í för með sér að kynhvöt-
in hverfur og hin svo nefndu af-
leiddu (sekunderu) kyneinkenni
koma ekki fram. Menn hafa
einnig lengi vitað að ástæðan er
sú, að titekin hormón — kyn-
bormónin — glatast. Hormón
kynfæranna, follikúlín hjá kon-
um og testosterón hjá körlum,
eru flókin lífræn efnasambönd,
svonefnd steróíð (skyld D-víta-
míni), og er efnasamsetning
þeirra kunn. Það eru ekki að-
eins kynkirtlarnir (eggjakerfin
í konunni og eistun í karlmann-
inum) sem gefa frá sér kyn-
hormón. 1 raun og veru er hin
eiginlega uppspretta — hin æðri
hormónamiðstöð — eins fjarri
kynkritlunum og unnt er. Hún
er í heiladinglinum, litlum kirtli
sem hangir neðan úr miðjum
heilanum. Fyrir samspil þessara
og fleiri kirtla, fyrst og fremst
nýmahettanna, verður nú hin
gagngera breyting á drengjum
og stúlkum sem við nefnum
kynþroska.
66