Úrval - 01.06.1957, Síða 80

Úrval - 01.06.1957, Síða 80
URVAL innar fyrir aðgerðarleysi henn- a.r í málinu — einmitt þá kom Causton prófessor úr sumarleyfi sínu í Júgóslavíu. Hann hafði skrifað konu sinni kort áður en hann lagði af stað að heiman, því að ferðina bar brátt að, en viðutan eins og prófessora er siður hafði hann stungið kortinu í ferðatösku sína í stað þess að póstleggja það. „Sláturtíðindi“, sem í sakleysi sínu höfðu komið ólátunum af stað, komu nú aft- ur við sögu. Svo vel vildi til, að Rohan-Dermot var gestur hjá prófessorsfrúnni daginn sem hún fékk nýtt kort frá manni sínum þar sem hann boðaði heimkomu sína með flugvél daginn eftir. Rohan-Dermot bað hana að þegja um komu manns síns; daginn eftir fór hann út á flugvöll, dró prófessorinn orðalaust inn í leigubíl og ók með hann heim. Næsta morgun komu „Sláturtíðindi“ út með stuttri grein, þar sem spurt var hvort kunnur vísindamaður mætti ekki fara í viku sumar- leyfi án þess að spyrja yfirvöld- in — og án þess að vera stimpl- aður sem föðurlandssvikari og kommúnisti. Causton prófessor væri auðvitað þar sem hann ætti að vera, í rannsóknarstofu sinni, og hvað hann væri að gera þar kæmi hvorki utanríkis- né flota- málaráðuneytinu við. Þessi stutta grein margfald- aði upplag „Sláturtíðinda." En velgengnin steig Rohan- Dermot til höfuðs. Hann var nú SAMKEPPNI UM HtJS OG BRÚÐI orðinn þreyttur á að gefa út menningarblað. Nú ætlaði hann að græða peninga. Eins og góðra kaupsýslu- manna er siður gerði hann í skyndi markaðskönnun. Hvað hafði reynzt stórblöðum lands- ins drýgst tekjulind? Ekki fréttir eða sögur eða greinar, heldur stjörnuspádómar og verðlaunasamkeppni. Aldraður blaðakóngur hafði nýlega sagt, að áhugi fólksins fyrir því sem væri að gerast færi síminnkandi, en ykist að sama skapi á því sem gæti gerzt, og þá einkum og sér í lagi á því sem gæti komið fyrir það sjálft. Ástir og trúmál eru fyrir löngu orðin verðlaus á markaðinum — það er vonin ein sem fólkið vill kaupa. Þessvegna eru blöðin fulí af leiðbeiningum um hesta-, hunda- og dúfnaveðhlaup og sífellt eru í gangi getraunir með peninga, hús, bíla og flugferðir í verðlaun. Það er sífellt verið að veifa óskagripum framan í blaðales- endur nútímans. Það geta allir fengið þá — að minnsta kosti fræðilega séð. En hvað er það, sem enginn fær? Tálfuglinn sjálfan! Stúlkuna í þröngu peysunni eða Bikinibaðfötunum, sem reykir Capstansígarettur eða heldur á sápupakka í grannri hendinni. Stúlkuna sem brosir gjöful til allra, en sem ekki er föl í neinni verðlaunasamkeppni. Það er hægt að vinna hús og 78
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.