Úrval - 01.06.1957, Síða 86

Úrval - 01.06.1957, Síða 86
ÚRVAL „MEÐ ÞRAUTSEIGJU SIGRUM VIÐ" Hinn 8. janúar sáust 500 hafís- jakar frá skipinu, og skýjaður himinn yfir sjóndeildarhringn- um í suð-suð-austri boðaði auð- an sjó. HUnn 10. janúar sáu skip- verjar snæviþakið land á 72°34' s. hr. og 16°40' v.l., og töldu þeir það vera eyju eða nes. Það gerði ofsastorm, en þegar veðr- ið lægði, tók. sjóinn þegar að leggja. Hinn 15. janúar sigldi „En- durance" fyrir jökulodda, sem gekk út í hafið, en í skjóli hans virtist vera bezta skipalægi, a. m. k. í öllum öðrum áttum en norðanátt. Dýpið var mælt og reyndist vera 200 metrar. Þarna virtist vera ákjósanlegasta upp- skipunarhöfn, en Shackleton vildi freista þess að sigla skip- inu til Vashelflóans, því að það- an var sleðaferðin mun styttri. Það gerði hvassviðri af norð- austri og skipið varð að leita lægis í skjóli við stóran borgar- ísjaka, sem stóð á grunni. Veð- urofsinn hélzt í marga daga og feiknin öll af rekís barst norð- ur á bóginn. I landi sást hvergi á dökkan díl. I dögun 22. janú- ar lægði storminn, en þá var skipið orðið fast í ísnum. Hafið var allt þakið samanþjöppuðu íshröngli og sást hvergi vök. 1 suðri og austri .grillti í land. Skipið barst með rekísnum til suðvesturs og hinn 7. febrúar var staða þess 76° s. br. Það var nú tekið að líða á heim- skautssumarið, en raunar hafði hitinn aldrei komizt upp fyrir frostmark, og íshrönglið fraus saman. Hillingar voru miklar og kjmjasýnir bar fyrir augu; ís- jakar stóðu á höfði, skýjabólstr- ar virtust vera land, og landið leit út eins og silfur- eða gull- ský, og jöklar heimskautslands- ins risu hátt yfir sjóndeildar- hringinn, enda þótt þeir væru fyrir löngu horfnir úr augsýn. En sárast af öllu var þó það, að sjá auðan sjó í fjarska, ís- laust haf, sem reyndist sjónvilla og blekking. I lok febrúar skrifar Schackle- ton: „Mér er nú orðið ljóst, að „Endurance“ situr fast í ísnum í vetur. Vindar af austri, suðri eða suðaustri geta ekki brotið ísinn, sem er alltaf að frjósa saman. Selirnir eru að hverfa og fuglarnir jrfirgefa okkur. Við verðum að bíða vorsins og vona að þá rætist úr fyrir okkur. Kuldinn í sumar hefur verið dæmalaus. Ég hef mestar á- hyggjur af ísrekinu. Hvert berst skipið með stormum og straum- um í vetur? Okkur rekur í vest- urátt, en hve langt ? Skyldi okk- ur takast að brjótast út úr ísn- um í vor og ná landi í Vashel- flóa eða á einhverjum öðrum stað?“ Það var slökkt undir gufu- kötlunum og skipinu brejrtt í vetursetustöð. TJr þessu var ekki lengur um sjómennsku að ræða; menn unnu á daginn og sváfu á nóttunni, enginn stóð vörð nema einn maður, sem átti að gæta hundanna og fylgjast með 84
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.