Verzlunartíðindi - 01.08.1962, Page 2
um af hálfu heilbrigðiseftirlitsins. Vissutega
verðurn við stundum varir við þetta sjónar-
mið, en þó aðeins hjá mönnum, sem yfirleitt
liafa aðra skoðun en við á hreinlæti. Við með-
ferð matvæia og neyzluvara vinna því miður
hér, sem annars staðar, margir, sem skortir
nauðsynlega þrifnaðarkennd. Af hirðuleysi,
slæmri umgengni og lélegri meðferð vörunn-
ar ieiðir, að meira fer í súginn en nauðsyn-
legt er, og húsakynni ganga fyrr úr sér, og
getur þetta oft haft slæm áhrif á fjárhag fyrir-
tækja. Gott húsnæði, góð umgengni og full-
komið hreinlæti er undirstaða vöruvöndunar
og bætir afkomu kaupmannsins.
Sem betur fer hafa margir matvörukaup-
menn mikla þrifnaðarkennd og sjá þeir heiður
sinn og hag í því að viðhafa snyrtimennsku í
hvívetna. Þessir menn eru heilbrigðiseftirlit-
inu ómetanleg stoð, því áhrif þeirra hafa verið
mikil. Hinar fallegu og vel búnu verzlanir,
o o
sem risið hafa á undanförnum árum, hafa ver-
ið lyftistöng framfara á þessu sviði.
2) Er gömlum sölubúðum hér í Reykjavík
yfirleitt áfátt frá heilbrigðilegu sjón-
armiði?
SVAR:
Sem betur fer má svara þessu neitandi, en
eðliiega á framþróun sér stað í þessum mál-
um sem öðrum. Gerðar eru meiri kröfur nú
en fyrir áratugum, og er því ýmsum gömlum
búðum áfátt á nútíma mælikvarða.
Það skal þó tekið fram, að aðai vandamál
heilbrigðiseftirlitsins er ekki lengur ástand
húsakynna verzlananna, heldur skortur á
hreinlæti og góðri umgengni í vissum hluta
þeirra.
3) Mæta kröfur heilbrigðiseftirlitsins skiln-
ingi verzlunareigenda og tekur eftir-
litið tillit til aðstæðna, þegar það gerir
sínar kröfur um endurbætur, svo sem
tæknilega og fjárhagslega?
SVAR:
Kröfur eftirlitsins mæta sí auknum skiln-
ingi, og er samvinna við flesta verzlunarmenn
hin bezta.
Ætíð er tekið tillit til tæknilegra aðstæðna,
erfiðara er að fara eftir fjárhagsaðstæðum
manna. Lágmarkskröfum verður að fram-
fylgja.
• • • ftlí li*
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
0. JOHNSON & KAABER HF.
þekkja DIF
50
VERZLUNARTÍÐINDIN