Verzlunartíðindi - 01.08.1962, Síða 20
fjárútlát fyrir viðkomandi fyrirtæki. Að sjálfsögðu var
ekki með þessu ætlazt til að meðlimum yrði á nokk-
urn hátt meinað að auglýsa hver fyrir sig, enda hafa
margir gert það um árabil og vilja gera það upp á
einsdæmi. Hins vegar er fjöldinn, sem gjarnan vill
vera í svona samstöðu eins og efnt var til, og að því
er ég bezt veit var þetta vel þegið og talið heppilegt.
V erzlunarskólinn.
A s. 1. vetri var efnt til námskeiðs í Verzlunarskól-
anum fyrir forgöngu og með aðstoð félagsins Sölu-
tækni til fræðslu og kynningar á hlutverki verzlunar-
fólks. Var leitað til Kaupmannasamtakanna og óskað
eftir að einhverjir af meðlimum okkar tækju að sér
að mæta á þessu námskeiði og flytja erindi og fræða
hið upprennandi verzlunarfólk um þessi mál, eftir
því sem aðstæða þeirra og þekking leyfði. I þessu sam-
bandi mættu fyrir okkur og fluttu erindi Þorvaldur
Guðmundsson, Björn Guðmundsson, Kolbeinn Krist-
insson, Sveinbjörn Árnason og Sveinn Snorrason. Er
mér kunnugt um að máli þeirra var vef tekið af nem-
endum og þótti takast með ágætum að dómi þeirra,
sem fyrir þessu stóðu, og vil ég fyrir hönd samtakanna
færa þessum meðlimum okkar þakkir fyrir þeirra starf
í þessu sambandi.
í framhaldi af þessu er ekki úr vegi að geta þess, að
yfir stendur húsbygging Verzlunarskólans. Verzlunar-
skólinn, rekstur hans og stjórn hefur aldrei veriðáveg-
um okkar samtaka, skólanefnd er skipuð að mestu af
Verzlunarráði Islands og hefur það frábyrjun haft með
að gera rekstur skólans og öll hans mál legið á þess herð-
um. Á s. 1. sumri bárust okkur tilmæli frá skólanefnd
Verzlunarskólans um að meðlimir okkar létu í té að-
stoð fjárhagslega við að ljúka byggingu skólans, sem
að allra dómi er mjög aðkallandi mál og brýn nauð-
syn á að flýta, til þess að hægt verði m. a. að veita
verzlunarfólki meiri, betri og varanlegri fræðslu held-
ur en nú er hægt við þau húsakynni, sem skólinn á
við að búa. Stjórn samtakanna kom þessari málaleit-
an áleiðis til allra sinna meðlima. Því miður hefur
árangur ekki orðið sá sem æskilegt væri og lítið orðið
ágengt, ef undan eru skildar myndarlegar undirtektir
þriggja af okkar meðlimum, en komandi stjórn sam-
takanna ætti að reyna að knýja meira á með þetta
mál og gera það sem unnt er, til þess að hin nýja
bygging verði tekin í notkun sem fyrst.
★
Hér að framan hef ég getið þeirra aðalmála, sem
við höfum haft til meðferðar á s. 1. starfsári. Margt
annað hefur borið á góma þótt þess sé ekki sérstak-
lega getið. Hvernig okkur hefur til tekizt er ykkar
að fjalla um og dæma. — Ég vænti þess þó, að okkur
hafi tekizt að þoka ýmsum sameiginlegum málefnum
í átt að réttu marki, og að störf okkar geti skoðast
jákvæð.
Að endingu færi ég ykkur þakkir fyrir gott og
ánægjulegt samstarf og starfsfólki samtakanna þakka
ég vel unnin störf.
\ \ i* kanptaxti
Samkvæmt nýgerðum samningi við Verzlunar-
mannafélag Reykjavíkur skal lágmarkskaup af-
greiðslufólks í verzlunum á félagssvæði V. R. frá
1. júní 1962 vera eins og hér segir:
1. flokkur:
a. Verzlunar- og deildarstjórar (karlar):
Mánaðarkaup
Byrjunarlaun ................ kr. 5.837,00
Eftir 1 ár ................... - 6.116,00
Eftir 2 ár ................... - 6.382,00
b. Verzlunar- og deildarstjórar (konur):
Mánaðarkaup
Byrjunarlaun ................ kr. 5.157,00
Eftir 1 ár ................... - 5.565,00
Eftir 2 ár ................... - 5.845,00
2. flokkur: Afgreiðslumenn með verzlunar-
skóla eða hliðstæða menntun eða 3ja ára
starfsreynslu:
Mánaðarkaup
Byrjunarlaun ................ kr. 4.805,00
Eftir 1 ár ................... - 5.219,00
Eftir 2 ár ................... — 5.490,00
3. flokkur: Aðrir afgreiðslumenn:
Mánaðarkaup
Byrjunarlaun ................ kr. 4.001,00
Eftir 1 ár ................... — 4.436,00
Eftir 2 ár ................... - 4.805,00
4. flokkur:
a. Afgreiðslustúlkur með verzlunarskóla- eða
hliðstæða menntun:
Mánaðarkaup
Byrjunarlaun ................ kr. 3.450,00
Eftir 6 mán................... - 3.782,00
Eftir 1 ár ................... - 4.352,00
Eftir 2 ár ................... — 4.398,00
b. Aðrar afgreiðslustúlkur:
Mánaðarkaup
Byrjunarlaun ................ kr. 2.892,00
Eftir 6 mán................... - 3.347,00
Eftir 12 mán.................. — 4.022,00
Eftir 2 ár ................... - 4.283,00
Eftir 4 ár ................... — 4.352,00
Eftir 5 ár ................... — 4.398,00
5. flokkur: Unglingar að 16 ára aldri:
Mánaðarkaup
Byrjunarlaun ................ kr. 2.500,00
Eftir 1 ár ................... - 2.778,00
Eftir 2 ár ................... — 3.026,00
6. flokkur: Sendisveinar:
Mánaðarkaup
kr. 1.878,00
til - 2.251,00
68
Hér lýkur skýrslunni um starfsemi
Kaupmannasamtakanna s.l. starfsár.
VERZLUNARTÍÐINDIN