Bókatíðindi - 01.12.2014, Page 24
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa22
Barnabækur ÞÝDDAR B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 4
D
Jólasyrpa 2014
Walt Disney
Jólin eru á næsta leiti og íbúar
Andabæjar hlakka til!
Árlega Jólasyrpa Disney kemur
öllum í rétta jólaskapið.
254 bls.
Edda útgáfa
B
Komdu að leika, litla mús
Hristibók með hljóði músarinnar
Þýð.: Berglind Kristjánsdóttir
Lítil feimin mús eignast vini og
uppgötvar hæfileika sína.
Hristu bókina til að heyra í litlu
músinni og gera söguna meira
spennandi.
Góð bók fyrir börn frá tveggja ára
aldri.
20 bls.
Setberg bókaútgáfa
B
Krakka Atlas
Glæsileg kortabók með 120 gluggum
Þýð.: Örnólfur Thorlacius
Glæstar byggingar, framandleg dýr og
einstætt landslag.
Skoðið myndskreyttu kortin, opnið
gluggana sem allir eru með texta og
myndum og þá mun margt áhugavert
koma í ljós.
Tilvalin bók fyrir alla krakka sem
hafa áhuga á heiminum.
14 bls.
Setberg bókaútgáfa
D
Leitum og finnum: Prinsessa
Þýð.: Bókafélagið
Sólbjörtu prinsessu hefur verið boðið
á ball en hún á engan kjól til að fara í.
Leitaðu um allt að gimsteinum, fjöðr-
um og öðru sem Sólbjört þarf fyrir
ballið. Armband fylgir með.
30 bls.
Bókafélagið (BF-útgáfa)
B
Hver brunar svona hjá?
Thomas Müller
Þýð.: Sigþrúður Gunnarsdóttir
Dráttarvélin, mótorhjólið, sjúkrabíll-
inn, jeppinn, glæsikerran, reiðhjólið
og grafan bruna öll í sömu áttina –
en hvert? Skemmtileg bendibók með
stífum spjöldum fyrir smáfólk sem
hefur áhuga á farartækjum af öllum
stærðum og gerðum.
35 bls.
Forlagið – Mál og menning
D
Hvernig passa á afa
Jean Reagan
Þýð.: Björgvin E. Björgvinsson
Myndir: Lee Wildish
Hvernig passa á afa fjallar um ungan
dreng sem gefur góð ráð um hvernig
hafa má ofanaf fyrir afa í heilan
dag. Hvað er hægt að gera þegar
farið er með afa í göngutúr? Hvernig
skemmtir maður afa eða svæfir hann
þegar hann er farinn að þreytast?
Gæðabók með glettinn tón.
24 bls.
Bókaútgáfan Björk
G
Íslenska-enska-spænska
1000 orð og límmiðar
Orðabók með límmiðum
Þýð.: Ragnheiður Kristinsdóttir
1000 algeng orð á íslensku, ensku og
spænsku með litríkum myndum.
Hver síða er með ákveðið þema og
því léttara að læra orðin.
100 límmiðar gera bókina enn
skemmtilegri!
Tilvalin bók fyrir alla krakka sem
hafa áhuga á tungumálum.
63 bls.
Setberg bókaútgáfa
B
Jólafjör – 20 myndir úr
f íltefni og fimm leikmyndir
Skapandi bók með færanlegum
efnismyndum
Þýð.: Helga R. Mogensen
Börn geta tengt einfaldan texta við
efnismyndirnar sem fylgja bókinni.
Efnismyndirnar festast við mjúku
blaðsíðurnar. Þær er svo hægt að taka
af aftur og endurskapa söguna.
Góð bók fyrir börn frá þriggja ára
aldri.
10 bls.
Setberg bókaútgáfa