Bókatíðindi - 01.12.2014, Síða 62
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa60
Ljóð og leikrit B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 4
E
„eins og ég C“
Sigurjón R. Vikarsson
Þetta er fyrsta ljóðabók Sigurjóns en
áður hefur hann samið þrjár skáld-
sögur.
Eins og nafnið gefur til kynna þá
fjalla ljóðin um sýn höfundar á lífið
og tilveruna og kennir þar margra
grasa.
Já, ástin og lífið, það er fjölbreitt
flóra til að föndra með.
108 bls.
Grágás ehf – Prentþjónusta
G
Ég leitaði einskis ... og fann
Hrafnkell Lárusson
Ljóðin eru fjölbreytt sem og form
þeirra. Í bókinni gefur m.a. að líta ljóð
sem eru hugleiðingar um tilveruna,
ádeilur eða sprottin af melankólísku
tilfinningaróti.
Höfundur hefur áður gefið út
fræðilegt efni, bæði bækur og greinar.
Ég leitaði einskis ... og fann er hans
fyrsta ljóðabók.
60 bls.
Hási kisi/ Hrafnkell Lárusson
E
Frá hjara veraldar
Melitta Urbancic
Melitta, sem flúði hingað undan
nasistum 1938 með börnum og
eiginmanni, Victori, var m.a. ljóð-
skáld, leikkona, fræðikona og mynd-
höggvari. Útlegð á hjara veraldar
var reynslurík og yrkisefni sem hún
geymdi í handriti sem nú kemur út
í fyrsta sinn. Ljúfsár og falleg ljóð
ásamt sögu þessarar merku konu.
218 bls.
Háskólaútgáfan
D
Hallgrímskver
Ljóð og laust mál
Hallgrímur Pétursson
Umsj.: Margrét Eggertsdóttir
Á þessu ári eru 400 ár liðin frá fæð-
ingu Hallgríms Péturssonar og af því
tilefni kemur út þetta vandaða úrval
verka hans. Margrét Eggertsdóttir
prófessor á Árnastofnun annaðist
valið og skrifar einnig formála og
skýringar þar sem þær eiga við.
398 bls.
Forlagið
D
Drápa
Gerður Kristný
Ljóð Gerðar Kristnýjar hafa heillað
lesendur um allan heim og fyrir þau
hefur hún meðal annars fengið Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin og verið
tilnefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. Drápa segir áhrifa-
ríka sögu í ljóði sem hefst nóttina
þegar myrkusinn kemur til borgar-
innar.
96 bls.
Forlagið – Mál og menning
E
Dröfn og Hörgult
Baldur Óskarsson
Eins og svo oft áður leikur Baldur sér
að orðum, gjarnan með mistorræðum
undirtexta. Hann vísar stundum
í framandi hugmyndaheima, forn
menningarsvið um víða veröld, en er
oft og iðulega léttur og gáskafullur.
Í þessari bók glittir meira í rím en í
öðrum bókum skáldsins.
105 bls.
Ormstunga
G
Eddukvæði
Umsj.: Gísli Sigurðsson
Eddukvæði eru ómetanlegur ljóð-
arfur úr munnlegri geymd þar sem
segir frá goðum og hetjum og upphafi
og endalokum heimsins samkvæmt
heimsmynd heiðinna manna. Í þess-
ari útgáfu með nútímastafsetningu
hefur Gísli Sigurðsson prófessor við
Árnastofnun samið skýringar við
kvæðin og greinargóðan inngang.
Í öskju.
508 bls.
Forlagið – Mál og menning
Endur
útgáfa
Allar bækurnar
í Bókatíðindum
...í einum smelli
heimkaup.is