Bókatíðindi - 01.12.2014, Blaðsíða 76
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa74
Ævisögur og endurminningar B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 4
D
Náttúrubarn
Sturla Friðriksson
Uppeldi sitt hlaut Sturla á ríkmann-
legu menningarheimili og ber hann
sterkan svip af erfðum og umhverfi,
dæmigerður fræðimaður sem fátt
er óviðkomandi í ríki vísinda og
mennta. Hér rekur Sturla minningar
sínar, m.a. við Laxfoss og Laufásveg,
segir af forfeðrum, samferðamönnum
og öðru því sem mótaði hann.
244 bls.
Háskólaútgáfan
D
Saga þeirra, sagan mín
Katrín Stella Briem
Helga Guðrún Johnson
Katrín Stella Briem segir sögu móður
sinnar og ömmu, Stellu Briem og
Katrínar Thorsteinsson, sjálfstæðra
kvenna sem létu hjartað ráða för og
storkuðu gildum samfélagsins. Marg-
slungin og heillandi örlagasaga lang-
mæðgna þar sem atburðarásin er oft
og tíðum ævintýralegri en í skáldskap.
404 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
D
Sigurður dýralæknir 2
Sigurður Sigurðarson
Sigurður dýralæknir er síðara bindið
af ævisögu Sigurðar Sigurðarsonar
dýralæknis. Hann fer enn á kostum
og segir hér frá dýralæknanáminu í
Noregi til þessa dags og dregur fram
ógrynni sagna af skemmtilegu fólki
og skemmtilegum viðburðum þótt
vitaskuld hafi stundum gustað um
hann og honum jafnvel verið hótað
lífláti.
320 bls.
Bókaútgáfan Hólar
E
Sigrún og Friðgeir
Ferðasaga
Sigrún Pálsdóttir
Haustið 1940 héldu tveir ungir ís-
lenskir læknar, hjónin Friðgeir Ólason
og Sigrún Briem, til Bandaríkjanna
í sérnám. Hann lauk doktorsprófi
frá Harvard og hún kandídatsári á
barnaspítölum. Árið 1944 sigla þau
heim með Goðafossi ásamt þremur
ungum börnum sínum. Ljúfsár og
afar áhrifamikil saga.
229 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
Endur
útgáfa
D
Í krafti sannfæringar –
saga lögmanns og dómara
Jón Steinar Gunnlaugsson
Jón Steinar segir frá uppvaxtarárum
sínum, mótun lífsskoðunar, lífsgæfu
sinni og lífinu. Dregur upp myndir
af samferðarmönnum og segir frá
áhugaverðum atburðum, en leggur þó
mesta áherslu á feril sinn sem mál-
flytjandi og dómari við Hæstarétt.
408 bls.
Almenna bókafélagið (BF-útgáfa)
D
Kaupmaðurinn á horninu
Óskar í Sunnubúðinni segir frá
Jakob F. Ásgeirsson
Kaupmaðurinn á horninu var í nán-
um tengslum við viðskiptavini sína,
hann lánaði og spjallaði, en bjó við
erfiðar aðstæður á tímum hafta og
skömmtunar. Öllu þessu lýsir Óskar
með lifandi hætti sem gerir þessa bók
ekki aðeins fróðlega og skemmtilega
heldur einstaka heimild um mannlíf
fyrr á tíð.
400 bls.
Ugla
D
Klénsmiðurinn á Kjörvogi
Þorsteinn Þorleifsson
Hallgrímur Gíslason
Klénsmiðurinn á Kjörvogi er ævisaga
Þorsteins Þorleifssonar (1821–1882)
sem lengst af bjó í Kjörvogi í Árnes-
hreppi. Hann lærði járnsmíði og
stundaði þá iðn alla ævi, en samhliða
starfaði hann við sjómennsku og bú-
skap, auk þess að fást við lækningar
og taka á móti börnum.
130 bls.
Bókaútgáfan Hólar
D
Líf mitt
Luis Suárez
Luis Suárez er einn besti knatt-
spyrnumaður samtímans en hann er
gallagripur – og hann veit það best
sjálfur. En hver er þessi hæfileikaríki
maður? Dramatísk æska, árin hjá
Liverpool, örlagaríkt heimsmeistara-
mót 2014, Barcelona – og æskuástin
Sofi. Ómissandi bók fyrir alla knatt-
spyrnuáhugamenn!
276 bls.
Veröld
K a r a b í s K u r þ r æ l l
v e r ð u r v e r s l u n a r s t j ó r i
á D j ú pav o g i
„einstök innsýn
í ómanneskjulegar
aðstæður, grípandi
frásögn ...“
Kristín loftsDóttir,
prófessor í mannfræði við H.í.
gísli pálsson
Hver var Hans Jónatan, maðurinn sem stal sjálfum sér?
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsin s | F i sk i slóð 39