Bókatíðindi - 01.12.2014, Blaðsíða 112
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa110
Fræði og bækur almenns efnis B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 4
G
Sönglög – Best að borða ljóð
Jóhann G. Jóhannsson
Sönglög Jóhanns G. Jóhannssonar við
ljóð Þórarins Eldjárns. Sautján lög
með vönduðum píanómeðleik samin
við úrval ljóða úr ýmsum ljóðabókum
Þórarins, bæði þeim sem ætluð eru
börnum og fullorðnum. Happafengur
fyrir söngvara á tónleikapalli sem og
söngnema og annað söngglatt fólk!
44 bls.
jgj útgáfa
G
Sönglög – Svið, við og þið
Jóhann G. Jóhannsson
Leikhústónlist Jóhanns G. Jóhanns-
sonar við texta Þórarins Eldjárns.
Tuttugu lög úr barnaleiksýningum
með píanóundirleik og bókstafa-
hljómum, m.a. úr Sitji guðs englar,
Litli-Kláus og Stóri-Kláus og Bróðir
minn Ljónshjarta, en Jóhann var um
árabil tónlistarstjóri Þjóðleikhússins.
48 bls.
jgj útgáfa
D
Tarfurinn frá Skalpaflóa
Magnús Þór Hafsteinsson
Þýski kafbátsforinginn Günther Prien
og áhöfn hans vöktu ómældan ótta og
hrylling meðal sjófarenda á siglinga-
leiðum sunnan Íslands. Á hinn bóg-
inn voru þeir dýrkaðir sem þjóðhetjur
heima fyrir. Þegar kafbátur þeirra
hvarf sporlaust í skipalestarorrustu
suður af Íslandi voru vinsældir þeirra
slíkar að Hitler bannaði fregnir af því.
Æsispennandi bók um kafbátahern-
aðinn í seinni heimsstyrjöldinni.
Bókaútgáfan Hólar
D
Tattoo
Tákn og merking
Jack Watkins
Myndskr.: Mark Franklin
Þessi lokkandi bók skoðar yfir 80
myndefni húðflúrsins frá margvís-
legum menningarskeiðum. Tattoo er
einstök og aðlaðandi bók sem höfðar
til allra sem heillast af húðflúri eða
búa yfir leyndri ósk um að fá sér
tattoo.
96 bls.
Steinegg ehf
E
Starfshættir í grunnskólum
við upphaf 21. aldar
Gerður G. Óskarsdóttir
Ein umfangsmesta rannsókn á grunn-
skólastarfi hérlendis. Niðurstöðum er
ætlað að bregða upp mynd af skóla-
starfi samtímans og skapa forsendur
fyrir þróunarstarfi á vegum sveitar-
félaga og einstakra skóla. Rannsóknin
verður gagnabanki til langtímarann-
sókna á starfsháttum í grunnskólum
til framtíðar.
320 bls.
Háskólaútgáfan
D
Sumarlandið
Guðmundur Kristinsson
Hér lýsa framliðnir því sjálfir, sem
gerist, þegar maðurinn deyr. Birtar
eru frásagnir 40 látinna ættingja og
vina og 12 presta. Þá eru frásagnir
breskra flugmanna frá stríðsárunum
og einn, sem fórst fyrir 72 árum og
viðtal við Richard Durst, kaptein í
bandaríska herliðinu á Selfossi sum-
arið 1942. Bókin var gefin út í nóv.
2010 og kemur nú út í 6. prentun.
258 bls.
Árnesútgáfan
Endur
útgáfa
G
Summerland, The
Guðmundur Kristinsson
Sagt er frá breska miðlinum Horace
Hambling. Og sýnum við dánarbeð og
jarðarfarir. Þá eru viðtöl við framliðna
presta og son höfundar, sem fórst í
bílslysi 2002 og mág hans, sem fórst í
árás kafbáts 1941 og breska flugmenn
frá stríðsárunum og kaptein Richard
Durst– um andlát þeirra og hvað við
tók. Loks er löng frásögn af ferðalagi
um framlífsheima. Bókin er á ensku.
247 bls.
Árnesútgáfan
D
Surtsey í sjónmáli
Erling Ólafsson og
Lovísa Ásbjörnsdóttir
Stórglæsileg bók sem gefur einstakt
tækifæri til að skyggnast inn í dulinn
heim Surtseyjar og kynnast jarð-
fræði, framvindu gróðurs, fuglalífi og
mótun samfélags smádýra. Stórbrotin
þróunarsaga í leikandi máli og stór-
kostlegum myndum sem fæstar hafa
áður komið fyrir augu almennings.
224 bls.
Edda útgáfa