Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Síða 7

Heima er bezt - 01.07.2001, Síða 7
Foreldrar Eysteins, Sigurborg Ólafsdóttir og Gísli Einar Jóhannesson. vogi, Flatey, Patreksfirði, Flat- eyri og ísafirði. Þá sagði ég stundum í gamni að það væri eins og okkur hefði verið skvett til beggja handa heiman úr Skáleyjum. Eg held að ég geti sagt að við höfum alist upp undir áhrifum gamalgróinnar menningar sem ríkt hafði, á ýmsum sviðum, um langt skeið í Flateyjarhreppi. Búskaparhættir fastmótaðir af aðstæðum eyjanna og áhrifa frá menning- arskeiði Flateyjar gætti á margan hátt. Foreldrar okkar voru samhent og höfðu mótast af samskonar uppeldi og lífsreynslu. Þau voru afar umhyggjusöm, en hörð lífsbar- átta og sífellt annríki olli því að umönnun barna kom að nokkru leyti í hlut Maríu föðurömmu okkar. Hún var þá orðin roskin kona, en hafði búið hér alla ævi. Hún var þannig gerð að börn og þeir sem höllum fæti stóðu í til- verunni hændust að henni. Ég hef litið þannig á að það orð hafi farið af henni víðar en meðal hennar nánustu. Til marks um það hef ég meðal annars litla sögu um gamlan mann uppi á landi. Ekki voru þau amma nákunnug. Þegar hann var gamall orðinn og hjálparþurfi átti að fara að senda hann á stofnun til aðhlynningar en hann brást reið- ur við og heimtaði að fá heldur að fara til Maríu í Skál- eyjum. Heimilisfólk var stundum allmargt, ungir og gamlir, skyldir og vandalausir. Föðursystkini mín, sem voru all- mörg, vitjuðu gjarnan æskuheimilis, einkum rneðan amma lifði og margt fleira af fyrrverandi heimilisfólki. Þá var ekki hjúahald úr sögunni né sveitarómagar. Kristín föðursystir mín, sem var kennari norður á Hornströndum og síðar í Skutulsfirði og á ísafirði, var hér alltaf á sumr- in og eftir að amma var orðin hjálparþurfi vegna elli ann- aðist hún móður sína þegar hún var heima í Skáleyjum. Börnin ekki iöjulaus Ekki þótti við hæfi að börn gengju iðjulaus eftir að þau gátu farið að hjálpa til enda verkefni næg. Systur mínar hjálpuðu til innanhúss og stundum við strákarnir líka. Þá var ekki komið rafmagn og mikið notaður heimafenginn eldiviður. Við hjálpuðum til á vorin við að flytja sauða- taðið á þurrkvöll, þurrka það, hreykja því og koma síðan í hús fyrir haust. Talsvert var gert af klíningi úr kúamykju eftir að snjóa leysti á vorin. Þá var mykjunni ekið úr fjósi jafnóðum og hún féll til, út á túnbala. Notaðir voru svo- kallaðir klíningsspaðar með blaði úr hvalbeini og hallandi löngu skafti. Mykjunni var skammtað í litlar dellur og þær klappaðar flatar með spöðunum. Þegar þær þornuðu var þeim snúið og síðan staflað fullþurrum í eldiviðarhús ásamt sauðataðinu. Klíningur logaði vel og var notaður til Eysteinn og Ólína systir hans ung að árum. Eysteinn og Jóhannes uppkveikju en gaf ekki mikinn hita. Fleira var notað svo sem þurrt þang en ekki var það vinsæll eldiviður. Mó þurfti að flytja í eyjar af landi og kol úr kaup- stað. Að gera klíning á vorin var kallað að gera úr og var það verk barna og unglinga og stundum eldra fólks. Það var oft mikið umstang og erill við féð vegna beitarnýtingar og sjávarhættu. Daglegar smalamennskur um stórstrauma á haustin og útbeit á vetrum. Beitilandið var hólmaklasar og fjörur. Sömuleiðis var kúapössun á sumrin og var þetta gjarn- an verkefni unglinga og krakka. Aldrei var erillinn meiri en við sauðburð á vorin áður en búið var að flytja féð til lands. Ekki voru allir gamlir þegar þeir fóru að taka þátt í dúnleitum á vorin og strákar í selalögnum og öðrum sjó- ferðum, t.d. hrognkelsaveiðum. Þá má nefna ávinnslu og hreinsun túna, garðyrkju með tilheyrandi martröð arfa- pillingar en ekki síst heyskapinn á túni og í úteyjum. Hann stóð að jafnaði fram undir leitir og landferðir. í öllu þessu tóku unglingar þátt jafnóðum og þeir uxu úr grasi og ekki má gleyma vatnsburði úr brunnum í bæ og gripa- hús. Það skal fúslega játað að ekki voru öll þessi störf vinsæl né unnin af áhuga en þetta þótti sjálfsagt og eng- inn möglaði enda þeir fullorðnu sífellt önnum kafnir sem fyrirmyndir fyrir þá yngri.“ Krakkarnir komu saman í rökkrinu Þegar Eysteinn var að alast upp voru sex heimili í Skál- eyjum í einu. „Það voru bæði bændur með ábúð og húsmenn. Þannig hafði þetta verið lengi. Húsmennirnir áttu sín heimili, nokkrar kindur í kofa, kartöflugarð og gjarnan bát. Þeir voru að heiman til sjós eða í kaupavinnu, stunduðu smíð- ar og annað sem til féll. Fengu mjólk hjá bændum og j Heima er bezt 247

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.