Heima er bezt - 01.07.2001, Síða 30
Marg\’ísleg skip og bátar
voru notaðir til strandferða við landið á stríðs-
árunum og við lok þeirra. Þarna er eitt þeirra
m/sk. Ebba, stödd á Haganesvík.
Danska leiguskipið e/s Skjold að koma til Reykjavíkur norðan
frá Haganesvík, en þangaó flutti skipiðrserjfffstísjjarm. til Skeiðs-
fossvirkjunarinnar frá Skotrdndbog fóT^q nrégtda sáíarhring að
losa skipið, þó að unnið vœri á vöktum með 8 uppskipunarbát-
um og á annað hundrað verkamanna. Nokkru síðar fórst þetta
skip aj'hernaðar völdum.
Jón var mikill aufúsugestur í mínum huga, margfróður
og gæddur frásagnarsnilld, og ég heyri enn í innri eyrum,
góðlátlegan hlátur hans í lok frásagnarinnar. Bar þar
margt á góma en mest heilluðu mig sögur af undarlegum
fyrirbærum frá verbúðalífi í Hraunakrók, meðan sjóróðr-
ar voru stundaðir þaðan. Þar notuðu vernienn tjörn í ná-
grenninu sem veðurvita á þann hátt að ef hækkaði vatnið
í henni þá vissi það á vont veður, en öfugt ef að lækkaði.
Mun þetta vera Narfatjörnin.
Þá urðu menn þarna varir ókennilegra sjávardýra á
fjörukambinum, sem líktust hundum og fleira dularfullt
bar fyrir á dimmum haustnóttum í Hraunakrók.
Skammdegið kom með jólin og ljós marglitra kerta
En blessuð jólin eru ekki nema einu sinni á ári. Þau eru
horfin á ósýnilegum vængjum veruleikans, jafnskjótt og
kertin eru brunnin. Og enn er nýtt ár byrjað og dagarnir
verða hversdagslegir á ný, að öðru leyti en því að daginn
fer aftur að lengja og sólin þokast ofurlítið hærra og
hærra upp á himininn með hverjum nýjum degi.
Einn vetrarmorgunn vaknar maður við óveðursdyn.
Norðan stórhríð með frostrósum á gluggum. Það er
dimmt í baðstofunni. Eg klæði mig óvenju vel og fer með
foreldrum mínum að sinna útiverkum. Dökk nóttin glímir
við morgunbirtuna, þangað til dagurinn brýst loks í gegn.
Snjókófið smýgur upp undir buxnaskálmarnar, ermarnar
eða þá niður með hálsmálinu, svo að hrollur fer um
mann. Brimhljóðið magnar óveðursdyninn. Ishafsbáran
brotnar hvítfext um alla Haganesvík og kannski er hafís-
inn stutt undan. Þess vegna voru haglabyssur og skotfæri
Sements-uppskipun í Haganesvík, 1945.
futninga tnilh > i
fyllti Iitlu baðstofuna birtu og yl á að-
fangadagskvöldi. Eftir aftansönginn í
útvarpinu var sest að hlöðnu mat-
borði, með hangikjöti, sviðum og
fleira góðgæti. Heitt súkkulaði var svo
drukkið á eftir.
Allir voru í hátíðarskapi, skepnun-
um var gefið í meira lagi, og þó að
hríðin lemdi stundum gluggana og
stryki kuldalega um þekjuna, var samt
friðsæld inni í þessu litla samfélagi.
Gleði skein úr andlitunum yfir jóla-
gjöfunum, þó að fábreyttar þættu þær
nú, og ljósið á stóra olíulampanum var
látið loga yfir jólanótt-
' VtíttH '
270 Heima er bezt