Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Síða 8

Heima er bezt - 01.07.2001, Síða 8
Bræðurnir i Skáleyjum ásamt Kristbjörgu Magnúsdóttur, sambýliskonu Jóhannesar, og tengdasyni hans, Alfreð Þórólfssyni. Börn Eysteins, talið f.v.: Andrés Gísli, Ingibjörg og Egill Teitur. Við veisluborð í Skáleyjum. Brœðurnir Eysteinn og Jóhannes og Egill sonur Eysteins. I miðju alheimsins á góðum degi. Hugað að æðarkollu. unnu ýmislegt fyrir þá í staðinn. Fengu einnig slægjur og heyjuðu fyr- ir kindum sínum. Allt var þetta áhugavert fyrir okkur unga fólkið og ýmislegt fluttu húsmennirnir með sér heim, nýstárlegt og framandi, jafnvel frá útlöndum þeir sem voru á togurum. Oft var hérna töluverður hópur af krökkum og ungu fólki, og það var siður að þessi hópur kæmi saman í rökkrinu á vetrum og færi í leiki. Þetta mun hafa verið allgamall siður og ýmsir leikir iðkaðir. Þar má nefna útilegumannaleik og bæjarleik, stór- fiskaleik og fallin spýtan, síðasta leik, yfir „sto“ og slagbolta, eitt par fram, hausinn - löppina - eða klóna, svo eitthvað sé nefnt. Sumt af þessu voru reyndar sumarleikir sem Kristín frænka innleiddi í sumarfríum sín- um. Reyndar kenndi hún okkur fleira. Til dæmis kenndi hún mér að lesa svo ungum að ég man varla eftir því. Heimsreisa að fara í Svefneyj- ar Þá var skólamálum svo háttað að fastur skóli hafði starfað um hríð í Flatey en farkennsla oftast í öðrum eyjum hreppsins. 248 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.