Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.07.2001, Blaðsíða 22
Sjálfsmynd af Ríkarði Jónssyni ungum. tekt, einstakur ljúflingur og efnis- maður á alla grein. Árið 1929 keyptu þau hjón húsið Grundarstíg 15, af Helga Valtýssyni og þar var heimili þeirra upp frá því. Ríkarður Jónsson var, eins og áður getur, gæddur ákaf- lega ljölþættum gáfum. Hann gat haslað sér völl á ýms- um sviðunr og hefði alls staðar komist í fremstu röð. Hann gat orðið félagsmálaleiðtogi. Hann var ágætlega skáldmæltur og málhagur mjög. Hann bjó yfir miklum söng- og tónlistarhæfileikum. Hann hafði rödd úr hvers manns barka og hefði getað orðið afbragðs leikari. Hann hafði fágæta frásagnarhæfileika og var hafsjór af hvers konar sögum og sögnum. Sú hætta er ávallt búin ungum mönnum með fjölþætta hæfileika að þeir eigi erfitt með að velja sér ævistarf. Þeir sjá vegi liggja til allra átta. En Ríkarði tókst ungum að velja sér veg. Ef til vill hefur hin einstæða undraveröld æskustöðvanna átt sinn þátt í því vali. Að minnsta kosti er víst að þangað átti hann eftir að sækja marga fyrir- myndina að listaverkum sínum. En hvert var svo ævistarf þessa manns? Hver er sá arfur sem hann færði þjóð sinni? Hann arfleiddi hana að þús- undum fágætra listaverka og eru mörg þeirra dreifð um víða vegu. Segja má að hann hafi jöfnum höndum stundað mynd- skurð, höggmyndalist og teikningar. Hann skar út af rniklu listfengi ótölulegan grúa alls konar muna, smærri og stærri, sem ýmist eru í eigu einstaklinga, stofnana eða ríkisins. Hann mótaði brjóstmyndir af miklum fjölda manna, hárra sem lágra. Þær munu um langan aldur gera hvort tveggja í senn: geyma svipmót viðkomandi einstak- lings og það, sem speglar og vitnar um snilli listamanns- ins. Til hans var gjarnan leitað um gerð minnisvarða, svo sem af Torfa í Ólafsdal og konu hans og Stephani G. Stephanssyni á Arnarstapa á Vatnsskarði. Teikningar hans eru fleiri en tölu verði á komið. Hann kenndi fjölda manna teikningu og tréskurð. Hann efndi til sýninga á verkum sínum, bæði hér heima og erlendis, m.a. austur í Rússlandi á vegum MIR. Ummæli gagnrýnenda voru yfirleitt á þá leið að „verk- ið lofi meistarann, enda fór þar saman hugkvæmni og handbragð. Hann safnaði santan höfðaletri og greindi og skrifaði um það merkilega grein í fyrra bindi Iðnsögu Islands 1943. Hann skrifaði dagbók og stundaði í því sambandi orðasöfnun. List hans sameinaði með sjaldgæfunt hætti að vera bæði þjóðleg og alþjóðleg. Afköst Ríkarðs Jónssonar voru með ólíkindunt, enda mátti segja að á langri starfsævi félli honum aldrei verk úr hendi. Og þó var eins og hann hefði alltaf tíma til alls. Gestagangur var jafnan mikill á Grundarstígnum og hús- ráðendur kunnu öllum betur að taka á móti gestum og skemmta þeim. Þarna komu saman ýmsir andans menn, listamenn, furðufuglar og umkomuleysingjar. Allir voru jafn velkomnir. Manngreinarálit þekktist ekki á þessum bæ. Ríkarður Jónsson skrifaði fjölda blaðageina, enda rit- fær í besta lagi. Stundum tók hann sig til og orti heilar drápur og lausavísur lágu honum létt á tungu. Eitt sinn á góðri stundu, varpaði hann þessari vísu að vini sínum, Þórbergi Þórðarsyni: Furðumaður fágætur, friðar aldrei baðst né vægðar. Undraþundur ágœtur, íhaldinu lítt til þægðar. Sigvaldi Kaldalóns, tónskáld og Ríkarður voru aldavinir. Er Sigvaldi andaðist 28. júlí 1946, rnælti Ríkarður svo eftir hann: Vinirnir hverfa einn og einn, óðfluga leið til grafar. Fellur úr bergi steinn og steinn, styrkur er dauðans mistilteinn, stend ég að lokum eftir einn við endastöð hinstu nafar. Ríkarður tók ekki opinberlega mikinn þátt í þjóðmálabar- áttu samtíðar sinnar en fylgdist þó vel með henni og hafði þar sínar fastmótuðu skoðanir. Þeir Jónas frá Hriflu og Ríkarður voru miklirvinir. Sumarið 1916 fékk Jónas Rík- arð í fundaferð með sér um Norður- og Austurland. „En ég er enginn ræðumaður,“ sagði Ríkarður við Jónas. „Það gerir ekkert til,“ svaraði Jónas, „ég tala, þú syngur og stjórnar söngnum.“ Þjóðmálaskoðanir Ríkarðs Jónssonar voru mótaðar af viðhorfum gömlu ungmennafélaganna, sem höfðu að kjörorði „íslandi allt.“ Þess vegna var hann róttækur í skoðunum og alla stund ákveðinn andstæðingur erlendrar hersetu. Því varð honum eitt sinn að orði: Enn er þjökuð Islands byggð, alheimskunnar viðurstyggð. Mín er von að viskuhyggð, verndi frónska þjóðardyggð. Listaverk hans og ævistarf allt er lofsöngur til þessa lands og þessarar þjóðar. 262 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.