Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.07.2001, Blaðsíða 26
Sigurgeir Magnússon: y S V Veðmal að var á kreppuárunum, nokkru eftir 1930, þegar verkamannakaupið var innan við krónu á tímann og dilkurinn gerði um 7 krónur í innleggi. Þá var stað- bundið atvinnuleysi í öllum kaupstöðum og kauptúnum á landinu, þegar kom fram á haust. Þótti gott ef vinna var fyrir hendi yfir sumarið. Eftirspurn eftir unglingsstrákum var þá meiri en nú er til vinnu yfir heyskap- artímann, og þótti sjálfsagt að greiða þeim eitthvað smávegis kaup, oft ekki mikið, en viðleitni varþað samt. A þessum árum verslaði kaupmaður einn á Hverfisgötunni í Reykjavík. Hann rak all umfangsmikla verslun og hafði mikið undir. Viðskipti hans við bændur stóðu traustum fótum, sérstaklega austan fjalls, í Ámes- og Rangárvallasýslunni, enda var hann ættaður úr þeirri síðar nefndu. Þá gengu áætlunarbílar einu sinni í viku til Reykjavíkur og fluttu þeir vörur fyrir bænd- ur, austur. Þá var mikið verslað í einu. Það sem tekið var út að vorinu dugði ffam á haust, en þó var aðal kauptíðin fyrir veturinn. Það var sumar eitt, nokkru fyrir slátt, að bóndi einn úr Rangárvallasýslu, kom til áður nefiids kaupmanns til að versla. Bóndi þessi hafði orðið seinn fyrir með að fara suður í þetta sinn, af einhverjum ástæðum. Verslar bóndi nú allmikið og lætur á bílinn. En rétt um það leyti sem hann er að fara, segir hann við kaupmanninn, en þeir voru vel kunnugir: „Heyrðu annars, mig vantar strák í sumar, getur þú ekki útvegað mér hann?“ „Það líst mér illa á,“ segir kaupmaður, „það er orðið svo áliðið. Ég er búinn að út- vega marga stráka þarna austur í vor, en er hræddur um að nú sé öngvan að fá.“ „Þú reynir þetta nú fyrir mig,“ segir bóndi. „Ég þarf að skreppa hingað suður aftur eftir svona viku til hálfan mánuð, og þá tala ég við þig.“ „Þú getur reynt það,“ segir kaupmaður, „en hræddur er ég um að þetta gangi illa. En ég reyni sem ég get. Ég er reyndar með sendil, þrettán ára strák, það er hugsanlegt að ég geti náð í annan, ef hann vildi fara til þín í sumar.“ „Já, blessaður athugaðu það,“ segir bóndi. „Það skal ég gera,“ svaraði kaupmaður, „og ég læt þig vita um þetta strax og þú kemur aftur.“ Að rúmlega viku liðinni kemur bóndi suður, hittir kaupmann og spyr um strákinn. Jú, það var allt i lagi með strákinn, hann var til með að fara til hans í sumar, en eitt- hvert kaup þyrfti hann að fá. Bóndi kvað ekki standa á því, hann skyldi greiða hon- um eitthvert kaup. Aðalatriðið væri að sig vantaði strák. Kaupmaður hældi stráknum, kvað hann vera duglegan og að sér virtist, samvisku- samur. Það sagði bóndi sér líka vel, og vildi hann áijáður fá strákinn. „En,“ segir kaupmaður, „það er best að segja eins og er, það er einn galli á þessum strák.“ „Nú, hvað er það?“ spyr bóndi. „Hann vill alltaf vera að veðja við mig, og það versta er að hann vinnur alltaf. Ur því að það var ekki annað en þetta, kvaðst bóndi ekki vera smeykur við að taka stráksa. „Við skulum binda þetta fastmælum og hann fer þá með mér austur í dag.“ Nú fara þeir austur með áætlunarbílnum, bóndi og strákurinn. Var þó nokkuð löng leið heim til bónda, þaðan sem áætlunar- bíllinn stoppaði. Bóndi átti hesta sína geymda þama, og var nú lagt á og riðið af stað heim. Reiðhestur bónda var röskur og viljugur, og var hann því alltaf nokkuð á undan stráksa, sem reið hálfgerðum kerruklár. Þegar þeir höfðu farið nokkra leið, stígur bóndi af baki einhverra erinda, og strákur gerir slíkt hið sama. Eftir nokkra stund segir hann: ,fl>ú situr svo einkennilega á hestinum, er nokkuð að þér?“ „Hvaða vitleysa," segir bóndi, „það er ekkert að mér.“ „Jú, það er eitthvað að,“ segir strákur. Síðan halda þeir áffarn. Næst þegar þeir stansa, imprar stráksi á því sama: „Víst situr þú einkennilega á hestinum. Þú hallast, eins og þú eigir bágt með að sitja." „Hvaða vitleysa er þetta í þér,“ segir bóndi. „Ég sit bara eins og aðrir menn. Það sitja allir svona.“ Áfram er haldið og bóndi er alltaf góðan spöl á undan. í þriðja skipti á þeir og þegar strákur er kominn af baki, segir hann við bónda: „Nú veit ég hvað er að þér. Þú ert með gyllinæð.“ „Hvaða kjaftæði er þetta, ég er ekki með neina gyllinæð," segir bóndi. „Víst ertu með gyllinæð," segir strákur. „Ég skal veðja við þig fímmtíu krónum um að þú ert með gyllinæð.“ „Já, ég skal veðja við þig. Ég er sko alls ekki með gyllinæð," segir bóndi. „Hvemig ætlarðu að sanna mér það,“ segir strákur. „Ég skal sýna þér það þegar heim kemur, þá geturðu sannfærst sjálfúr, en fimmtíu- kallinn skal ég fá,“ segir bóndi. Seint um sumarið átti bóndi leið til Reykjavíkur og kom þá í búðina til kaup- mannsins á Hverfisgötunni. Þegar um hægist í búðinni, víkur kaupmaður sér að bónda og spyr hvemig honum líki við strákinn. „Vel,“ segir bóndi, ,Jiann er duglegur, ég hef mikið gagn af honum.“ „En,“ segir kaupmaður, „hefúr hann ekki viljað veðja við þig?“ „Nei, nei, það er ekki neitt, ja, utan dag- inn sem við fórum austur,“ segir bóndi. Varð nú kaupmaður all forvitinn og spyr bónda um hvað þeir hafi veðjað. Bóndi skýrir satt og rétt ffá öllu um veð- málið og að hann hafi unnið. „Hvemig fórstu að því að sanna mál þitt fyrir honum,“ spyr kaupmaður. „Nú, ég sýndi honum það þegar heún kom,“ svarar bóndi. „0, hver andskotinn," hrópar kaupmaður. „Það seinasta sem hann gerði áður en hann fór með þér austur, var að veðja við mig hundrað krónum um að hann skyldi sjá í beran rassinn á bónda, fyrsta kvöldið sem 266 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.