Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 28
Greinarhöfundur á hestbaki sumarið '40.
Með mér á myndinni er eldri systir mín.
Haganesvík 1947.
Bæjarhús í Neðra-Haganesi 1945.
ekki síður ævintýralegt að fylgjast með stóru flutninga-
skipunum nálgast Haganesvík utan af hinu stóra hafi, og
leggjast við festar framundan sjávarbakkanum í Neðra-
Haganesi, þar sem sum þeirra lágu dögum saman meðan
farmur var losaður og fluttur til lands í uppskipunarbát-
um. Þessum skipaferðum fylgdi mikill og hávaðasamur
fyrirgangur, keðjuglamur og eimpípublástur svo undir tók
í fjallahringnum, er lykur um sveitina að stórum hluta.
Stundum fékk ég að fljóta með uppskipunarbátnum um
borð, þar sem margt framandi bar fyrir augu ungs stráks.
Eftir mislangan tíma hurfu þessi skip aftur út af Haga-
nesvík, spúandi dökku skýi kolareyks út á hið víða haf
síðari heimsstyrjaldarinnar. Sum þeirra komu aftur, en
önnur ekki. Goðafossi, Dettifossi og danska leiguskipinu
Skjold, var sökkt af þýskum kafbátum. Nýstofnað flugfé-
lag, Loftleiðir h/f., hóf síldarleitarflug frá Miklavatni um
miðjan júlímánuð 1944. Flugmennirnir komu sér fljót-
lega upp bækistöð fyrir sjóflugvélar í landi jarðarinnar
Lambaness, þar sem skjólsæll hvammur gengur upp frá
fjöruborðinu undir svonefndum Lambanesás.
Glöggt man ég þegar fyrsti farkostur þeirra Loftleiða-
manna, sem var af Stinson Reliant gerð, kom sunnan yfir
fjöll og sveigði í lágflugi yfir undirritaðan, sem var að
eltast við kýr í Haganesmýrum og gat því vel fylgst með
lendingu flugvélarinnar.
Heima er bezt