Heima er bezt - 01.07.2001, Blaðsíða 33
,Stinson Reliant, flugvél Loftleiða, stödd á Miklavatni í Fljótum,
en þaðan flaug þessi vél
mikið í síldarleit.
Fyrstu rútubílarnir sem óku yfir
Siglufiarðarskarð sumarið 1947,
höfðu viðstöðu í Haganesvík.
Sildarleitarfiugvélin í bœkistöðinnþy
við Miklavatn í Fljótum.
Ein síðasta uppskipunin úr strandferðaskipi á Haganesvík.
Greinarhöfundur
og dcetur hans virða \
fyrir sér auðar hillur
og tómar skúffur sölu- ~
búðarinnar frá 1945, sem
þótti þá ein afþeim nýtísku
legustu í minni plássum
landsbyggðarinnar.
Baðstofugluggarnir eru ýmist á
kafi í fönn eða hvítir af hélu eins og
blind augu, sem stara út í kaldan
geiminn. Þegar sólin loks kemur upp
yfir fjallgarðinum í suðaustri, stirnir
á hvíta fannbreiðuna svo langt sem
augað eygir.
Bæjarhrafnarnir flúga með sultar-
krunki milli símastauranna á túninu
og fá þeir matarleifar heimilisins.
Eins er með snjótittlingana, þar
sem þeir hópast í moðsallann úr
gripahúsunum.
Sjórinn á Hagnesvík er aftur orð-
inn sléttur en blýgrár á litinn. Flek-
arnir af litlu timburbryggjunni liggja
vítt og breitt um ijöruborðið fyrir
Frá berjaferð í
Stífluhólum, 1945.
Fólkið erf.v. Björg,
Sigurður, Aðalbjörg og Bcira
Heima er bezt 273