Heima er bezt - 01.07.2001, Page 61
Átt flú í fórum flínum skemmtilega mynd, t.d. af atbur>i, sta>, húsum, dirum e>a
fólki, sem gaman væri a> birta í Myndbroti? Ef svo er flví ekki a> senda okkur hana til
birtingar og leyfa lesendum HEB a> njóta hennar líka?
Þann 5. september 1942 var mikill floti herskipa ogflutninga-
skipa á Seyðisfirði, var talið að um eðayfir 50 skip vœru á
firðinum. Þrír kajbátar voru að taka olíu við stórt olíu-
birgðaskip, sem lá fyrir akkerum á Kringlunni.
Um klukkan 11 komu skyndilega tvœrþýskar árásarflugvélar
ogflugu suðuryjir fjörðinn.
Önnurflugvélin varpaði tveimur sprengjum að olíu-
birgðaskipinu en hæföi það ekki. Fór önnur sprengjan í sjó-
inn, en hin i götuna um 20 metrum innan við húsið Björgvin
að Strandarvegi 21 og sprakk þar.
I uppsátri neðan götunnar voru fjórir drengir að leik i og við
litla skektu.
Við sprenginguna myndaðist trektlaga gígur og kastaðist grjót
og sprengjubrot í allar áttir út frá gígnum og lenti að nokkru á
drengjunum. Tveir þeirra slösuðust mikið, Grétar Oddsson 7
ára missti annan fótinn ogjafnaldri hans, Aðalbergur Þórar-
insson hlaut einnig mikla áverka en hinir tveir meiddust
minna. Skektan brotnaði mikið og allar rúður á þeirri hlið
hússins Björgvin sem vissu að sprengingunni brotnuðu en íbú-
ana sakaði ekki. Sjóhús og biyggja eyðilögðust og þak gripa-
húss utan og ofanvið íbúðarhúsið skemmdist af steinkasti.
Einar Vilhjálmsson.
Heimaerbezt 301