Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 68

Heima er bezt - 01.07.2001, Qupperneq 68
Sýslumannsfrúin átti að vera heima en ekki úti á vinnu- markaðnum. Lína hafði sætt sig við þetta lengi vel, þótt hún væri ekki ánægð, en nú var hún eiginlega búin að fá nóg. Þótt hún væri komin lagt á leið, þá var hún ekki til- búin að sitja með hendur í skauti og flétta á sér hárið. Hún hafði komið sér vel hjá hinum konunum og ef til vill gæti hún fengið þær til að vera virkari og standa meira uppi í hárinu á körlunum. Hana klæjaði í lófana að hafa eitthvað þannig fyrir stafni. Þrátt fyrir fyrirferðarmikla bumbuna var Lína léttstíg er hún arkaði inn bæinn. Hún ætlaði í Gunnuhús. Þótt Gunna væri eilítið létt á bárunni, þá kunni Lína vel við hana. Hún var sjálfstæð, sá vel fyrir sér og var alveg sama um umtal annara. Það var líklega hennar mál hvort hún reykti vindla, drykki brennivín eða svæfi hjá kostgöngur- unum. Gunna var dálítið undrandi er hún opnaði fyrir Línu. Hún heilsaði þó glaðlega. - Er nokkuð að? Lína blés mæðinni. - Nei, ég þarf bara nauðsynlega að tala við þig. Gunna bauð henni til stofu og vissi ekki alveg hvernig hún átti að vera. Hún hafði setið með góða bók, vindilstúf og koníakstár er Lína kom. Hún hafði ekki átt von á nein- um gestum þetta kvöld. Það virtist ekki koma mikið við Línu að sjá koníaks- staupið eða vindilstubbinn. Hún lét fallast niður í hæg- indastól og stundi við. - Það getur verið býsna erfitt að ganga með þessi blessuð börn, sérstaklega ef maður er að flýta sér. Gunna brosti. - Ég hef nú aldrei verið svo lánsöm að eignast börn, en ég get ímyndað mér að það geti tekið á. Lína hló. - Ég kom nú reyndar ekki til að tala um börn eða með- göngu, ég kom til að tala um karlmenn. Nú var Gunna undrandi. - Hvað áttu við? - Mér finnst sumir karlmenn ósköp heimskir, þótt þeir séu vel gefnir. Mér finnst að við konurnar ættum að hafa meiri völd, ráða meiru. Þeir eru stundum svo skelfing grænir greyin. Gunna skellti upp úr. - Ertu að meina eitthvað sérstakt, Lína mín? - Já. Það munaði minnstu að hann Sigmundur lenti í steininum fyrir þjófnaðinn á Hóli. Ég vissi að hann gat ekki verið sekur. Ég held að við verðum að koma upp um þennan verknað áður en búið er að loka einhvern saklaus- an inni í kjallaranum hjá mér. Gunnu svelgdist á vindlinum. Hún hóstaði nokkra stund. - Hvað eigum svið sosum að gera? - Taka höndum saman. Það býst enginn við neinu merkilegu af konum hvort sem er, svo að hinn seki er ef- laust grandalausari gagnvart okkur. Ég veit bara ekki við hverjar er best að tala. Borghildur er alveg komin að Strönd og ætlar víst að kaupa Hól svo að það er ekkert víst að hún komi aftur. Ætli hún skilji ekki bara við Jökul? Gunna starði á Línu. - Heyrðu mig, viltu koníak? - Nei, ekki fyrr en barnið er fætt. Hann Kristján fengi slag og lokaði mig inni ef ég lyktaði af brennivíni, komin á steypirinn, en ef þú átt sterkt kaffi þá vil ég það. Gunna flýtti sér fram til að ná í kaffi handa Línu. Hún var mjög undrandi yfir þessari heimsókn og í fljótu bragði skildi hún ekki hvað sýslumannsfrúin var að fara. Það voru allir að tapa glórunni í plássinu þessa dagana. Sýslumannsfrúin orðin kvennréttindakona, Kjartan búinn að hengja sig og Brekkubæjarhjónin að skilja. Það var eins og að þessa óveðursnótt hefði skyndilega allt orðið vitlaust. Lína tók við kaffibollanum og saup hressilega á. - Þú sérð það Gunna mín, við verðum að gera eitthvað. Kristján ætlar að fara að kalla á einhverja lögreglumenn frá Akureyri til að yfirheyra okkur. Ég held að þá muni nú taka steininn úr. Ef við getum ekki leyst einfalt þjófn- aðarmál sjálf, þá erum við einfaldlega ekki sjálfbjarga. Ef við náum þjófnum, þá er kannski von til þess að lífið hér komist í fastar skorður. Við verðum til dæmis að fá Borg- hildi heim aftur. Hver á að stjórna fiskvinnslunni? Varla fer Jökull að koma í land til þess og guð hjálpi konunum þá, eins og skapið í honum er. Gunna kímdi og leyfði Línu að láta móðan mása. Hún var ung og ör. En hún var alls ekki búin. Heldur leit íbyggin á Gunnu. - Ætlar þú að taka saman við Sigmund? Gunna varð orðlaus. - Hva, ég, af hverju? - Þið eruð saman er það ekki? - Ef þú meinar hvort við séum elskendur þá er svarið já, en ég ætla ekki að giftast honum. Ég ætla alls ekki að giftast. Lína hugsaði sig um. Hún var nægilega ung til að skilja þessa afstöðu. Það var ekkert að því að Gunna og Sig- mundur ættu góðar stundir saman. Guðs blessun skaðaði samt ekki. Gunna saup á koníakinu. - Ég vil engar skuldbindingar. Hins vegar er mér mjög vel við Sigmund og það var gott að fá hann til baka. - Hvað var hann að gera í Reykjavík? Gunna stundi. - Hann neitar að segja mér það, en að minnst kosti var hann vel fjáður er hann kom til baka. Lína kinkaði kolli. - Kristján veit ástæðuna og að minnsta kosti tók hann hana góða og gilda. Ég er samt ekki viss. Hvað gerist ef einhverjir ókunnir lögreglumenn koma og ef þeir finna engan sökudólg. Taka þeir þá ekki Sigmund af því að hann var að slá um sig með fé á sama tíma? - Ég veit það ekki. - Gerum eitthvað. Leggjum gildru fýrir þjófinn. Gunna, þú verður að hjálpa mér, en Kristján má alls ekki vita neitt. Við skulum upplýsa þetta mál. 308 Heima er bezt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.