Gátt - 2016, Blaðsíða 4
stöðu manns á vinnumarkaði.
allir a
ð fara í það sem
hafa kost á því.
góð leið til
að komast ú
t og hitta
fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar se
m það er sta
tt o
g mæta þeim sem eru les-, e
ða talnablindir o
g eiga
Námskeiðið hefur sty
rkt mig persónulega í
Námskeiðið gjörbreytti m
ér og mínu lífi
, það gaf m
ér m
ikið
Sjálfssty
rking og samskipti er
stór þáttur í náminu og mjög
Gott a
ð hafa stu
ðning vinnustaðarins til
að sækja námskeiðið.
Námskeiðið var fjölbreytt og skemmtilegt og það hefur veitt m
ér in
nsýn
í hvar mínir sty
rkleikar lig
gja og hvað ég þarf að gera til a
ð komast í
4
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
Ágætu lesendur, hér getur að líta
Gátt 2016, þrettándu Gátt, ársrits
um framhaldsfræðslu. Gátt er vett-
vangur umræðu um nám fullorðinna
og starfsmenntun á Íslandi. Þau tölu-
blöð sem þegar hafa komið út hafa
hlotið góðar viðtökur. Prentuð eintök
af fyrstu útgáfu ritsins, frá árinu 2004,
eru uppurin en við finnum glöggt,
tólf árum síðar, að nú hefur þeim
fjölgað sem nýta sér tækifæri til þess
að hlaða niður einstökum greinum
úr árgöngum ritsins af vef Fræðslu-
miðstöðvarinnar, www.frae.is. Les-
endahópurinn stækkar og verður fjölbreyttari með hverju riti.
Leiðtogar, kennarar, ráðgjafar, stjórnendur og síðast en ekki
síst námsmenn eru í þeim hópi. Ritstjórninni er kunnugt um
að ritið er notað til kennslu um kennslufræði fullorðinna víðar
en á námskeiðum Kennslufræðimiðstöðvar FA, til dæmis í að
minnsta kosti þremur háskólum á landinu og fögnum við því.
Í riti ársins er að finna fjölbreytt efni, úrval greina sem
við teljum að eigi erindi við þá sem koma að fræðslu full-
orðinna á Íslandi. Hér er fjallað um fjölmörg verkefni, inn-
lend og erlend, sem samstarfsaðilar Fræðslumiðstöðvarinnar
vinna að. Meginmarkmið þeirra er að efla fullorðna og gera
þeim kleift að verða virkir þátttakendur á vinnumarkaði og í
samfélaginu.
Á tímum sem þessum, þegar þúsundir flóttamanna
streyma til Evrópu, verður ekki hjá því komist að fjalla um
þær aðferðir sem beitt er á Íslandi til þess að kenna „ást-
kæra, ylhýra, málið“ og aðstoða þá sem hingað flytja við
að laga sig að vinnumarkaði og samfélaginu. Í þessari
Gátt er fjallað um rannsókn á námsskránni Landnemaskól-
anum II, þar sem rýnt er í gerð og notkun námsskrárinnar. Í
kennslumati koma fram jákvæð viðhorf þátttakenda ásamt
ummælum um hvernig námið gagnaðist á afar margvíslegan
hátt. Einnig er grein um samþættingu tungumálanáms og
starfsþjálfunar fyrir atvinnuleitendur af erlendum uppruna.
Þá er grein um samstarfsverkefni Finna, Eista, Letta, Litháa
og Íslendinga sem ber yfirskriftina Lingua cafe. En það er,
eins og nafnið bendir til, fjölmenningarmót á kaffihúsi, þar
sem einstaklingar frá ólíkum löndum hittast yfir kaffibolla og
velja sér ólík tungumál til tjáskipta. Þar gefst fólki af ólíkum
uppruna tækifæri til þess að hittast, kynnast og skiptast á
skoðunum.
Eins og hefð er fyrir, er í Gátt 2016 einnig umfjöllun um
starfsemi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og greinar um
raunfærnimat, náms- og starfsráðgjöf og grunnleikni. Grein-
arnar bera þess vitni að við lifum á tímum örra breytinga og
að hverjum einstaklingi er nauðsynlegt að efla stöðugt færni
sína til þess að geta mætt áskorunum sem breytingunum
fylgja. Sem starfsmenn gætum við til dæmis staðið frammi
fyrir því að flytja á milli landa, verða að skipta um starfsvett-
vang þar sem krafist er nýrrar leikni og nýrrar hæfni og þurfa
að leggja stund á nám að nýju. Við sem einstaklingar berum
sjálf ábyrgð á að bæta okkur en hlutverk stjórnvalda er að
skipuleggja og skapa skilyrði sem gera okkur það mögulegt.
Fyrir hönd ritstjórnarinnar vona ég að þetta 13. tölublað
Gáttar verði kærkomin lesning þeim sem koma að námi full-
orðinna. Lesendur eru hvattir til þess að láta skoðanir sínar í
ljósi, gefa okkur ábendingar, senda okkur hugmyndir og taka
virkan þátt í því að efla framhaldsfræðslu og starfsmenntun
á Íslandi. Fyrir hönd ritstjórnar vil ég þakka öllum sem lögðu
hönd á plóginn við útgáfu þessa rits.
Njótið lestursins!
Sigrún Kristín Magnúsdóttir
SIGRÚN KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR
P I S T I L L R I T S T J Ó R A