Gátt - 2016, Blaðsíða 72
stöðu manns á vinnumarkaði.
allir a
ð fara í það sem
hafa kost á því.
góð leið til
að komast ú
t og hitta
fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar se
m það er sta
tt o
g mæta þeim sem eru les-, e
ða talnablindir o
g eiga
Námskeiðið hefur sty
rkt mig persónulega í
Námskeiðið gjörbreytti m
ér og mínu lífi
, það gaf m
ér m
ikið
Sjálfssty
rking og samskipti er
stór þáttur í náminu og mjög
Gott a
ð hafa stu
ðning vinnustaðarins til
að sækja námskeiðið.
Námskeiðið var fjölbreytt og skemmtilegt og það hefur veitt m
ér in
nsýn
í hvar mínir sty
rkleikar lig
gja og hvað ég þarf að gera til a
ð komast í
72
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
RITSTJÓRN
F Y R I R M Y N D I R Í N Á M I F U L L O R Ð I N N A
Dragan Pavlica er frá Króatíu og kom til Íslands árið 2003
sem flóttamaður. Hann settist að á Akureyri og fékk starf
hjá málarameistara en hann hafði áður unnið við að mála í
flóttamannabúðum í Serbíu. Eftir hvatningu frá atvinnuveit-
enda sínum fór Dragan í raunfærnimat í málaraiðn hjá Símey
árið 2008. Honum gekk vel í matinu og kláraði í framhaldinu
nám í bóklegum greinum í Námi og þjálfun hjá Símey. Eftir
að hafa lokið bóklegu greinunum og bætt sig í íslensku fór
Dragan í Verkmenntaskólann á Akureyri til þess að ljúka þeim
faggreinum sem vantaði upp á eftir raunfærnimatið. Þaðan
lauk hann sveinsprófi árið 2011 og er í Meistaraskólanum í
dag samhliða vinnu sinni sem húsvörður í Verkmenntaskól-
anum á Akureyri.
Kristján Jónsson hóf nám í málaraiðn í Iðnskólanum eftir að
hafa lokið grunnskóla. Hann hætti þó strax eftir fyrstu önnina
og dróst í óreglu, fyrst í áfengisneyslu og síðar í harðari efni.
Árið 2010 fór Kristján í áfengismeðferð og að henni lokinni
í Grettistak sem er samstarfsverkefni Tryggingastofnunar og
Reykjavíkurborgar, þar sem markmiðið er að gefa þeim sem
átt hafa við langvarandi og alvarlegan vímuefnavanda tæki-
færi til endurhæfingar eftir meðferð. Næsti áningarstaður var
Hringsjá en þar segist Kristján hafa komist að því að hann
gat vel lært. Einn daginn rakst hann svo á auglýsingu um
raunfærnimat í málaraiðn hjá IÐUNNI. Hann sló til, þar sem
hann hafði unnið nokkuð við að mála. Í matinu kom í ljós
að hann hafði mikla þekkingu í faginu. Hann fór í kjölfarið
í Tækniskólann og lauk þaðan sveinsprófi í málaraiðn. Krist-
ján hafði snúið lífi sínu við, snúið baki við óreglunni, lokið
Fyrirmyndir í námi fullorðinna er viðurkenning sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, FA, hefur veitt árlega frá árinu
2009. Viðurkenningin er veitt til þeirra sem hafa skarað fram úr og sýnt góðan námsárangur, frumkvæði og kjark
við að yfirstíga ýmsar hindranir eins og læsis- eða námsvanda. Fyrirmyndirnar eru valdar úr hópi tilnefninga
frá samstarfsaðilum Fræðslumiðstöðvarinnar. Framtíðin í framhaldsfræðslu var yfirskrift ársfundar FA árið 2015.
Fundurinn var haldinn á Grand hótel þann 30. nóvember að viðstöddu fjölmenni. Þar var tveim einstaklingum veitt
viðurkenningin, þeim Dragan Pavlica frá Símey og Kristjáni Jónssyni frá IÐUNNI fræðslusetri. Þá var í fyrsta skipti
jafnframt veitt viðurkenning til hóps, og hlaut viðurkenninguna starfsfólk FISK Seafood, sem stundað hefur nám í
fisktækni hjá Farskólanum á Norðurlandi vestra. Þetta árið eiga allir verðlaunahafarnir það sameiginlegt að hafa
sótt sér frekari menntun í kjölfar raunfærnimats.
Dragan Pvalica ásamt Erlu Björgu Guðmundsdóttur, þáverandi framkvæmda-
stjóra SÍMEY.
Kristján Jónsson ásamt Sonju dóttur sinni og Ernu G. Arnardóttur, náms- og
starfsráðgjafa hjá IÐUNNI fræðslusetri.