Gátt - 2016, Blaðsíða 51
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
51
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
löndum hittast yfir kaffibolla og velja sér ólík tungumál til
tjáskipta. Tilgangur verkefnisins er að gefa fólki tækifæri
til að æfa talmál, auk þess sem það gefur fólki af ólíkum
uppruna tækifæri til þess að hittast, kynnast og skiptast á
skoðunum. Verkefnið felur meðal annars í sér að undirbúið er
fjölbreytilegt námsefni sem nýtist til að aðstoða fólk sem er
að hefja nám í íslensku, hvetur það áfram og auðveldar því
samskipti. Auk þess eru fleiri tungumál þjálfuð og fara þau
að sjálfsögðu að miklu leyti eftir þátttakendum, áhugasviði
og bakgrunni þeirra.
S A M S TA R F S A Ð I L A R A Ð V E R K E F N I N U .
Samstarfsaðilar að NBCL (Norrænt-baltneskt Café Lingua)
eru Íslendingar, Eistlendingar, Lettar, Litháar og Finnar.
Finnska stofnunin Learning for Intergration (LFI) fer með
verkefnastjórn en markmið þeirrar stofnunar er að aug-
lýsa og styrkja tungumálakennslu, ásamt því að styðja við
aðlögun og samlögun innflytjenda að nýju samfélagi. Jafn-
framt hefur stofnunin að markmiði að vinna með börnum
flóttafólks í Finnlandi sem og á hinum Norðurlöndunum til
að stuðla að uppbyggingu blómlegs fjölmenningarsamfélags.
Verkefninu var hleypt af stokkunum haustið 2015 með fyrsta
fundinum sem haldinn var í Finnlandi í október sama ár. Þar
heimsóttu þátttakendur meðal annars Lingua Café í Helsinki
en það var stofnað fyrir um það bil 10 árum af háskólanem-
endum sem vildu eiga möguleika á að þjálfa finnsku sem og
fleiri tungumál, auk þess að kynnast og efla fjölmenningar-
samfélag háskólanema.
Lingua Café MSS
Hluti af verkefninu fólst í því að kanna með skoðanakönnun
hvernig fólk telur best að læra tungumál og hvaða skoðanir
fólk hefur yfirleitt á tungumálanámi. Könnunin var lögð fyrir
alla þátttakendur í upphafi verkefnisins. Niðurstöður leiddu í
ljós að þátttakendur töldu talþjálfun vera mjög mikilvægan
þátt sem oft væri af skornum skammti og leggja bæri rækt
við hann í tungumálanámi. Því næst var hafist handa við að
undirbúa verkefnabanka. Opinn aðgangur er að vefsíðu til
námsefnisgerðar, The Language Menu (thelanguagemenu.
com) þar sem hægt er að vinna verkefni á fjölmörgum tungu-
málum. Við höfum notið góðs af því og útbúið skemmtileg
og gagnleg byrjendaverkefni í íslensku. Þá var komið að
því að finna samstarfsaðila til að hýsa Lingua Café MSS og
höfðum við samband við Café Petite sem er notalegt kaffihús
í Reykjanesbæ og tóku þau okkur fagnandi. Í apríl opnuðum
við síðan Lingua Café MSS til reynslu á þriðjudagskvöldum
frá klukkan 8 til 10 og tókst vel til. Við höfðum opið í apríl
og maí til reynslu en formleg opnun var 11. október sl. Við
fengum marga kaffigesti frá ólíkum löndum og teljum við
þessa tilraun okkar hafa tekist mjög vel. Hugmyndin er að
auglýsa Lingua Café meira meðal hinna ýmsu fyrirtækja og
stofnana hér á svæðinu og gera enn betur með haustinu.
Um miðjan október hittast samstarfsaðilar á Íslandi á
fundi þar sem verkefnið verður vegið og metið og drög verða
lögð að framtíð þess.
Heimasíða verkefnisins er www.nbvl.eu
Facebooksíða verkefnisins er http://www.facebook.com/
NordicBalticCafeLingua
Facebooksíða Café Lingua MSS er https://www.facebook.
com/Lingua-Caf%C3%A9-MSS-1176523765721877/?fref=ts
U M H Ö F U N D A N A
Guðjónína Sæmundsdóttir hefur starfað sem forstöðu-
maður MSS frá árinu 2003. Hún hefur lokið BS-prófi í ferða-
málafræði og diplómaprófi í tölfræði og náms- og starfsráð-
gjöf. Guðjónína hefur tekið þátt í fjölmörgum evrópskum og
norrænum samstarfsverkefnum á sviði fullorðinsfræðslu og
starfsmenntunar.
Sveindís Valdimarsdóttir hefur starfað sem verkefnastjóri
og kennari íslenskunámskeiða hjá MSS frá árinu 2008. Hún
hefur lokið B.Ed. prófi frá Kennaraháskóla Íslands. Sveindís
hefur tekið þátt í fjölmörgum evrópskum og norrænum sam-
starfsverkefnum á sviði fullorðinsfræðslu og starfsmenntunar.
Það er gaman að sjá fólk af ólíkum þjóðernum tala saman á íslensku. Það er ýmislegt til umræðu á
Lingua Café og orðabingó er t.d. mjög vinsælt.