Gátt - 2016, Blaðsíða 30
stöðu manns á vinnumarkaði.
allir a
ð fara í það sem
hafa kost á því.
góð leið til
að komast ú
t og hitta
fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar se
m það er sta
tt o
g mæta þeim sem eru les-, e
ða talnablindir o
g eiga
Námskeiðið hefur sty
rkt mig persónulega í
Námskeiðið gjörbreytti m
ér og mínu lífi
, það gaf m
ér m
ikið
Sjálfssty
rking og samskipti er
stór þáttur í náminu og mjög
Gott a
ð hafa stu
ðning vinnustaðarins til
að sækja námskeiðið.
Námskeiðið var fjölbreytt og skemmtilegt og það hefur veitt m
ér in
nsýn
í hvar mínir sty
rkleikar lig
gja og hvað ég þarf að gera til a
ð komast í
30
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
E V R Ó P U Á H E R S L U R
Árið 2012 komu út tilmæli frá Evrópuráðinu (European coun-
cil, 2012) um mat á óformlegu og formlausu námi (raun-
færnimat) þar sem horft er til þess að löndin komi á laggirnar
raunfærnimatsleiðum fyrir árið 2018. Þessar leiðir eiga að
auðvelda fólki að auka sýnileika og gildi þeirrar þekkingar,
leikni og hæfni sem það býr yfir, færninnar sem það hefur
öðlast utan formlega skólakerfisins og þeirrar þjálfunar sem
það hefur fengið í starfi, heimavið eða í gegnum félagsstörf. Í
tilmælunum eru dregnir fram lykilþættir raunfærnimatsleiða.
Raunfærnimatsleiðirnar þurfa að:
• Vera tengdar hæfnirömmum og í samhengi við Evrópska
hæfnirammann (EQF)
• Nýta sömu/jafngild viðmið og notuð eru við hæfnivottun
innan formlega skólakerfisins
• Byggja á gagnsæju gæðakerfi sem styður við áreiðan-
leika og réttmæti aðferða og tækja
• Fela í sér virka upplýsingagjöf og aðgengi að ráðgjöf fyrir
einstaklinga og fræðsluaðila
• Leggja sérstaka áherslu á hópa/einstaklinga sem standa
fjær námi (nýta t.d. færniskráningar)
• Bjóða upp á faglega þróun þeirra aðila sem koma að
matinu
• Nýta evrópsk tæki til að auka gagnsæi
• Vera samhljóða einingakerfum
Yfirlit um stöðu raunfærnimats í löndum í Evrópu hefur verið
tekið saman með upplýsingum úr landsskýrslum (European
Inventory on validaton of non-formal and informal learning)
sem síðan hafa verið teknar saman í yfirlits-, samanburðar-
og þemaskýrslur. Mikil þróun hefur átt sér stað undanfarin ár
og sífellt fleiri þjóðir vinna að því að setja af stað upp raun-
færnimatsleiðir. Hagsmunaaðilar koma nú meira að málum
Haukur HarðarsonFjóla María Lárusdóttir
FJÓLA MARÍA LÁRUSDÓTTIR OG HAUKUR HARÐARSON
F R É T T I R A F R A U N F Æ R N I M AT I
Í þessari samantekt er fjallað um þróun raunfærni-
mats bæði hér heima og erlendis. Í greininni er litið
til áherslna í Evrópu, þróunar á Norðurlöndum og farið
yfir stöðuna hér á landi. Mikil þróun er í gangi í mála-
flokknum hvað varðar áherslur og útbreiðslu, enda
þykir ljóst að raunfærnimat er afar öflugur hvati til
áframhaldandi færniuppbyggingar hvort sem rætt er
um formlegt eða óformlegt námsumhverfi.