Gátt - 2016, Blaðsíða 50
stöðu manns á vinnumarkaði.
allir a
ð fara í það sem
hafa kost á því.
góð leið til
að komast ú
t og hitta
fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar se
m það er sta
tt o
g mæta þeim sem eru les-, e
ða talnablindir o
g eiga
Námskeiðið hefur sty
rkt mig persónulega í
Námskeiðið gjörbreytti m
ér og mínu lífi
, það gaf m
ér m
ikið
Sjálfssty
rking og samskipti er
stór þáttur í náminu og mjög
Gott a
ð hafa stu
ðning vinnustaðarins til
að sækja námskeiðið.
Námskeiðið var fjölbreytt og skemmtilegt og það hefur veitt m
ér in
nsýn
í hvar mínir sty
rkleikar lig
gja og hvað ég þarf að gera til a
ð komast í
50
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
F L I P T H E C L A S S R O O M
Flip the Classroom er eitt þeirra verkefna sem MSS tekur þátt
í á þessu ári. Verkefnið, sem er Erasmus+ verkefni, hófst í
desember 2014 og er því tveggja ára.
Samstarfsaðilar að verkefninu
Samstarfsaðilar að Flip the Classroom eru Íslendingar, Pól-
verjar, Ítalir, Norður-Írar og Lettar. MSS fer með verkefna-
stjórn í verkefninu.
Verkefnið
Verkefnið snýst um að kennarar læri að beita aðferðum vendi-
kennslu. Til að ná þessum markmiðum voru haldnar fimm
daga vinnubúðir fyrir kennara í hópi samstarfsaðilanna.
Vinnubúðirnar voru haldnar á Íslandi í mars 2015. Dagskráin
var mjög fjölbreytt og var farið yfir hugtakið vendikennslu og
ýmsar kennsluaðferðir sem nýta má við vendikennslu. Þátttak-
endur fengu kennslu og kynningu á kennslu- og samskipta-
kerfunum Lync, Smartboard, Livescribe, Moodle, Book creator
og Educreations. Þátttakendur sóttu fyrirlestur hjá Aaron Sam
og Jonathan Bergmann sem og vinnustofur á ráðstefnu sem
Keilir hélt og var hluti af Evrópuverkefni sem starfsmenn þar
leiða. Þekkinguna sem þátttakendur öðluðust nýttu þeir til
að búa til námsefni í tungumálakennslu sem samsvarar 12
kennslustunda kennslu. Tvær ráðstefnur voru haldnar á vegum
verkefnisins. Önnur af samstarfsaðilum í Eistlandi og hin í Pól-
landi. Þátttakendur í báðum löndum voru um 60 manns bæði
innlendir og erlendir aðilar í fullorðinsfræðslu.
Samstarfsaðilarnir eru sammála um að með verkefninu
hafi þekking aukist á vendikennslu innan stofnunarinnar og
notkun á aðferðinni aukist.
Heimasíða verkefnisins er http://flippedclass.weebly.com/
Facebooksíða verkefnisins er https://www.facebook.com/
fliptheclass/?fref=ts
L I N G U A C A F É Á V E G U M M S S O G
N O R D P L U S ( N B C L )
Á síðasta ári hófst mjög spennandi verkefni sem ber heitið
Lingua café. Eins og nafnið bendir til er hér um að ræða fjöl-
menningarmót á kaffihúsi, þar sem einstaklingar frá ólíkum
GUÐJÓNÍNA SÆMUNDSDÓTTIR OG SVEINDÍS VALDIMARSDÓTTIR
E V R Ó P U V E R K E F N I
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) hefur tekið
þátt í Evrópuverkefnum frá stofnun miðstöðvarinnar.
Evrópuverkefni hafa haft áhrif á þróun verkefna og
þjónustutilboða til viðskiptavina. Verkefnin eru afar
ólík og er ávinningur stofnunarinnar sömuleiðis mjög
misjafn og fer algerlega eftir verkefnum. Árangur verk-
efna stjórnast líka af því hversu vel starfsfólki sem
tengist verkefnunum tekst að nýta þau inn í sitt dag-
lega starf hjá stofnuninni. Þau verkefni sem MSS hefur
tekið þátt í hafa sum breiðst út um allt land og sum
hafa orðið að námskeiðum eða þjónustu sem er í boði
hjá MSS. Það er sammerkt með flestum verkefnum að
þau gagnast sem sí- og endurmenntun fyrir starfsfólk
MSS. Við fáum tækifæri til að læra af öðrum Evrópu-
þjóðum og staðfæra góð verkefni frá þeim yfir á íslenskar aðstæður. Jafnframt fáum við tækifæri til að miðla
okkar þekkingu, kenna öðrum og færa öðrum þjóðum verkefni okkar.
Í dag tekur MSS þátt í nokkrum erlendum verkefnum og verður sagt frá tveim þeirra.
Sveindís ValdimarsdóttirGuðjónína Sæmundsdóttir