Gátt - 2016, Blaðsíða 35
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
35
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
H U G M Y N D A F R Æ Ð I O G M A R K M I Ð
M E Ð K O R T L A G N I N G U
Markmið með kortlagningu er að fá yfirsýn yfir helstu störf
og starfsheiti í ferðaþjónustu. Tengd störf eru sett saman á
kort og áhersla er lögð á að sýna fram á þarfir fyrirtækja ann-
ars vegar og möguleika einstaklinga til starfsþróunar hins
vegar. Mikilvægt er að hafa í huga að kortlagning er ekki
endanleg greining á einstökum störfum, heldur könnun á því
hvaða störf eru til staðar og mat á þeim kröfum sem gerðar
eru um sjálfstæði og ábyrgð.
Markmiðið með kortlagningu er að greina:
• þörf fyrir greiningu á einstökum störfum og/eða starfa-
klösum,
• möguleika á raunfærnimati í kjölfar greiningar,
• möguleika fyrir nám og samtengingu náms,
• áhersluatriði fyrir stefnumótun.
Niðurstöður kortlagningar hafa verið kynntar á vett-
vangi Stjórnstöðvar ferðamála, starfsgreinaráðs matvæla-,
veitinga- og ferðaþjónustugreina, hjá fræðsluaðilum og í
atvinnulífinu. Viðbrögðin hafa verið góð og kortlagningin
hefur þegar nýst til stefnumótunar.
S A M S TA R F U M F R Æ Ð S L U M Á L
Samtök ferðaþjónustunnar og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
hafa um árabil átt samstarf um fræðslumál. Samstarfið hefur
gengið vel en eins og í öllu góðu samstarfi er mikilvægt að
staldra við öðru hvoru og spyrja hvort ekki sé hægt að gera
betur. Það var gert árið 2015 og niðurstaðan var sú að æski-
legt væri að finna leið til að gera ákvarðanir um fræðslu-
verkefni í ferðaþjónustu markvissari og byggja þær í auknum
mæli á samtali við atvinnulífið.
Ef það er ekki gert er hætta á að:
• erfitt verði að móta heildarstefnu starfsgreinarinnar,
• ákvarðanir verði ómarkvissar og tilviljanakenndar,
• leiðir og tækifæri til starfsþróunar verði ekki sýnileg og
illa gangi að laða hæft fólk til starfa.
Þá kom fram hugmynd um kortlagningu á störfum og starfs-
heitum í ferðaþjónustu og var unnið út frá nálgun sem sjá
má á mynd 1.
U M F R A M K V Æ M D
Kortlagningin var unnin í samstarfi við Starfsgreinaráð mat-
væla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina. Umfang verkefnis-
ins var þannig afmarkað og lögð voru fyrstu drög að upp-
HAUKUR HARÐARSON OG MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR
K O R T L A G N I N G S TA R F A Í F E R Ð A Þ J Ó N U S T U
Í greininni er gerð grein fyrir verkefni um kortlagningu
starfa og starfsheita í ferðaþjónustu. Markmiðið með
kortlagningunni var að fá yfirsýn yfir helstu störf og
starfsheiti í atvinnugreininni og að gera stutta lýsingu
á störfum þar sem áhersla var lögð á að greina sjálf-
stæði og ábyrgð. Upplýsingum um störf og starfsheiti
var safnað á fundum með stjórnendum og starfs-
mönnum fyrirtækja, oftast hjá mannauðsstjóra, fram-
kvæmdastjóra eða deildarstjóra. Hluti af niðurstöðum
kortlagningarinnar var birtur í skýrslunni Fjárfestum í
hæfni starfsmanna sem Stjórnstöð ferðamála gaf út í
júlí 2016.
María GuðmundsdóttirHaukur Harðarson