Gátt - 2016, Page 72

Gátt - 2016, Page 72
stöðu manns á vinnumarkaði. allir a ð fara í það sem hafa kost á því. góð leið til að komast ú t og hitta fólk. Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki þar se m það er sta tt o g mæta þeim sem eru les-, e ða talnablindir o g eiga Námskeiðið hefur sty rkt mig persónulega í Námskeiðið gjörbreytti m ér og mínu lífi , það gaf m ér m ikið Sjálfssty rking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög Gott a ð hafa stu ðning vinnustaðarins til að sækja námskeiðið. Námskeiðið var fjölbreytt og skemmtilegt og það hefur veitt m ér in nsýn í hvar mínir sty rkleikar lig gja og hvað ég þarf að gera til a ð komast í 72 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6 RITSTJÓRN F Y R I R M Y N D I R Í N Á M I F U L L O R Ð I N N A Dragan Pavlica er frá Króatíu og kom til Íslands árið 2003 sem flóttamaður. Hann settist að á Akureyri og fékk starf hjá málarameistara en hann hafði áður unnið við að mála í flóttamannabúðum í Serbíu. Eftir hvatningu frá atvinnuveit- enda sínum fór Dragan í raunfærnimat í málaraiðn hjá Símey árið 2008. Honum gekk vel í matinu og kláraði í framhaldinu nám í bóklegum greinum í Námi og þjálfun hjá Símey. Eftir að hafa lokið bóklegu greinunum og bætt sig í íslensku fór Dragan í Verkmenntaskólann á Akureyri til þess að ljúka þeim faggreinum sem vantaði upp á eftir raunfærnimatið. Þaðan lauk hann sveinsprófi árið 2011 og er í Meistaraskólanum í dag samhliða vinnu sinni sem húsvörður í Verkmenntaskól- anum á Akureyri. Kristján Jónsson hóf nám í málaraiðn í Iðnskólanum eftir að hafa lokið grunnskóla. Hann hætti þó strax eftir fyrstu önnina og dróst í óreglu, fyrst í áfengisneyslu og síðar í harðari efni. Árið 2010 fór Kristján í áfengismeðferð og að henni lokinni í Grettistak sem er samstarfsverkefni Tryggingastofnunar og Reykjavíkurborgar, þar sem markmiðið er að gefa þeim sem átt hafa við langvarandi og alvarlegan vímuefnavanda tæki- færi til endurhæfingar eftir meðferð. Næsti áningarstaður var Hringsjá en þar segist Kristján hafa komist að því að hann gat vel lært. Einn daginn rakst hann svo á auglýsingu um raunfærnimat í málaraiðn hjá IÐUNNI. Hann sló til, þar sem hann hafði unnið nokkuð við að mála. Í matinu kom í ljós að hann hafði mikla þekkingu í faginu. Hann fór í kjölfarið í Tækniskólann og lauk þaðan sveinsprófi í málaraiðn. Krist- ján hafði snúið lífi sínu við, snúið baki við óreglunni, lokið Fyrirmyndir í námi fullorðinna er viðurkenning sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, FA, hefur veitt árlega frá árinu 2009. Viðurkenningin er veitt til þeirra sem hafa skarað fram úr og sýnt góðan námsárangur, frumkvæði og kjark við að yfirstíga ýmsar hindranir eins og læsis- eða námsvanda. Fyrirmyndirnar eru valdar úr hópi tilnefninga frá samstarfsaðilum Fræðslumiðstöðvarinnar. Framtíðin í framhaldsfræðslu var yfirskrift ársfundar FA árið 2015. Fundurinn var haldinn á Grand hótel þann 30. nóvember að viðstöddu fjölmenni. Þar var tveim einstaklingum veitt viðurkenningin, þeim Dragan Pavlica frá Símey og Kristjáni Jónssyni frá IÐUNNI fræðslusetri. Þá var í fyrsta skipti jafnframt veitt viðurkenning til hóps, og hlaut viðurkenninguna starfsfólk FISK Seafood, sem stundað hefur nám í fisktækni hjá Farskólanum á Norðurlandi vestra. Þetta árið eiga allir verðlaunahafarnir það sameiginlegt að hafa sótt sér frekari menntun í kjölfar raunfærnimats. Dragan Pvalica ásamt Erlu Björgu Guðmundsdóttur, þáverandi framkvæmda- stjóra SÍMEY. Kristján Jónsson ásamt Sonju dóttur sinni og Ernu G. Arnardóttur, náms- og starfsráðgjafa hjá IÐUNNI fræðslusetri.

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.