Gátt - 2016, Qupperneq 10
stöðu manns á vinnumarkaði.
allir a
ð fara í það sem
hafa kost á því.
góð leið til
að komast ú
t og hitta
fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar se
m það er sta
tt o
g mæta þeim sem eru les-, e
ða talnablindir o
g eiga
Námskeiðið hefur sty
rkt mig persónulega í
Námskeiðið gjörbreytti m
ér og mínu lífi
, það gaf m
ér m
ikið
Sjálfssty
rking og samskipti er
stór þáttur í náminu og mjög
Gott a
ð hafa stu
ðning vinnustaðarins til
að sækja námskeiðið.
Námskeiðið var fjölbreytt og skemmtilegt og það hefur veitt m
ér in
nsýn
í hvar mínir sty
rkleikar lig
gja og hvað ég þarf að gera til a
ð komast í
10
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
Ö F L U N U P P LÝ S I N G A U M M A R K H Ó P
O G M E N N T U N A R Þ A R F I R H A N S
Fræðsluhönnunarferli FA (greining, hönnun, innleiðing og mat)
vegna starfstengds náms hefur verið í endurskoðun og þróun
á árinu til að koma til móts við athugasemdir Menntamála-
stofnunar (sjá kafla hér aftar um námskrár og námslýsingar).
Greiningarhluti ferlisins byggir á aðferðum FA við hæfni-
greiningar sem eru komnar í ákveðinn farveg og hafa nám-
skrár og námslýsingar verið skrifaðar sem byggja á þeim.
Jafnt FA sem samstarfsaðilar sem hafa hlotið þjálfun í að
beita aðferðafræðinni, geta framkvæmt greiningarnar. Áfram
verður unnið við að þróa vinnubrögð við hæfnigreiningar og
þjálfa samstarfsaðila í notkun þeirra. Upplýsinga er einnig
aflað um markhópinn með því að kortleggja þau störf sem
til greina kemur að hæfnigreina. Stefnt er að fjölgun hæfni-
greininga og uppbyggingu á hæfnigrunni FA.
Unnið hefur verið markvisst að því að efla þátttöku
atvinnulífsins í hæfnigreiningum. FA hefur tekið þátt í að
kortleggja störf innan ákveðinna starfsgreina. Það er liður í
því að afla upplýsinga í samstarfi við atvinnulífið og er gert í
þeim tilgangi að hvetja til hæfnigreininga.
Kortlagning á störfum og starfsheitum í ferðaþjónustu
var unnin í samstarfi við Starfsgreinaráð matvæla-, veitinga-
og ferðaþjónustugreina. Markmið með kortlagningu er að fá
yfirsýn yfir helstu störf og starfsheiti í ferðaþjónustu. Í því
felst að gera stutta lýsingu á hverju starfi, þar sem áhersla
er lögð á að greina það sjálfstæði og þá ábyrgð sem felst í
starfinu. Verkefnið var undirbúið með því að afmarka umfang
þess og móta fyrstu drög að uppbyggingu kortlagningar.
Haldnir voru fundir með hagsmunaðilum um uppbyggingu
starfa innan einstakra starfssviða. Í verkefninu var ákveðið
að undanskilja störf í ferðaþjónustu á vegum opinberra aðila,
svo og fólksflutninga með flugi og skipum.
Í framhaldi af undirbúningi kortlagningarinnar voru
stjórnendur fyrirtækja beðnir um að meta einstök störf út frá
verkefnum, sjálfstæði og ábyrgð. Markmiðið með því var að
marka skýr skil á milli starfa þar sem í mörgum tilvikum voru
notuð mörg ólík starfsheiti fyrir sambærileg störf, og einnig til
að gera möguleika til starfsþróunar innan greinarinnar sýni-
lega. Alls var haldinn 31 fundur af þessu tagi. Flest fyrirtækin
voru á höfuðborgarsvæðinu en sum fyrirtækin voru með
starfsstöðvar víða um land. Fyrirtækin voru misjöfn að stærð.
Í apríl, maí og júní var unnið að kortlagningu starfa í
skrifstofu- og verslunargreinum fyrir starfsgreinaráð skrif-
stofu- og verslunargreina. Markmið kortlagningarinnar var
að fá yfirsýn yfir helstu störf og starfsheiti í þessum greinum.
Gerð var stutt lýsing á störfum þar sem áhersla var lögð á
að greina sjálfstæði og ábyrgð sem þeim fylgir. Haldnir
voru fjórir fundir með starfsgreinaráðinu og stjórnendur 14
fyrirtækja voru heimsóttir. Verkefninu lauk með því að niður-
stöður voru kynntar fyrir starfsgreinaráðinu.
FA átti fulltrúa í verkefnahópi á vegum Stjórnstöðvar
ferðamála sem hafði það meginverkefni að greina þarfir fyrir
heildstæðar úrbætur sem efla hæfni, gæði, fagmennsku og
þekkingu innan ferðaþjónustunnar og gera tillögur að skil-
virkum leiðum til úrbóta. Fulltrúinn var skipaður af Stjórn-
stöð ferðamála í kjölfar útgáfu Vegvísis í ferðaþjónustu í
október 2015. Verkefnahópurinn lauk störfum vorið 2016 og
hefur skilað tillögum um aðgerðir til Stjórnstöðvar ferðamála.
Skýrsla hópsins ber heitið Fjárfestum í hæfni starfsmanna.
Þar eru meðal annars gerðar tillögur um þrepaskiptingu
náms, tengingu við hæfniramma um íslenska menntun (ISQF)
og aukið vægi raunfærnimats. Einnig er lagt til að stofnað
verði Þekkingarsetur ferðaþjónustunnar og að Fræðslumið-
stöð atvinnulífsins leiði verkefnið. Á fjáraukalögum ársins var
veitt fé til stofnunar Þekkingarsetursins.
FA hefur sinnt beiðnum um greiningarverkefni eftir bestu
getu og sett nýja starfaprófíla sem verða til við greiningar inn
í hæfnigrunn FA. Fylgt hefur verið eftir ritun og notkun nám-
skráa með það í huga að meta hvernig niðurstöður hæfni-
greininga nýtast við námshönnun og námskrárritun.
Þróun greiningaraðferðarinnar í samræmi við þróun
fræðsluhönnunarferlisins er í stöðugri vinnslu. Sú þróun helst
í hendur við þróun á námskrám t.d. hvernig unnið er með
almenna starfshæfni í námskrám. Stefnt er að því að einfalda
ferlið án þess að minnka gæði og aðkomu atvinnulífs.
Lýsingar á hæfniþáttum hafa verið endurskoðaðar eftir
þörfum m.t.t. orðalags og þrepaskiptingar. Vinna hófst við
þýðingu nokkurra nýrra hæfniþátta á seinni hluta árs 2015 í
tengslum við þau greiningarverkefni sem þá lágu fyrir. Þeirri
vinnu er nú lokið. Aðrir þættir voru einnig yfirfarnir og lýsingar
á efri þrepum nokkurra þátta voru þýddar úr ensku. Prentun er
lokið á þriðju útgáfu af spjöldum sem innihalda nú 71 hæfni-
þátt á 6 þrepum. Nokkrum stjórnunarþáttum er aðeins lýst á
fjórum þrepum, þar sem þeir eiga ekki við, eðli málsins sam-
kvæmt, á neðstu þrepum viðmiðarammans. Fjórir þættir til
viðbótar eru í hæfnigrunninum en voru ekki settir á spjöld.
Þar er um að ræða grunnleikni sem þróa þarf nánar.
FA tekur þátt í norrænu samstarfsverkefni um sameigin-