Gátt - 2016, Page 17
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
17
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
fyrir framvindu og innihald verkefnisins. Í því felst meðal ann-
ars að lesa yfir matsgögn sem þróuð voru af breska matsaðil-
anum og veita endurgjöf samkvæmt beiðnum og spurninga-
listum hans, í samvinnu við Menntavísindastofnun.
Miðlun upplýsinga um verkefnið felst meðal annars í því
að útbúa upplýsingaefni. Almennt kynningarbréf var útbúið
fyrir hagsmunaaðila sem sniðið var fyrir hvern aðila og
mögulegar útfærslur á samstarfi og þjónustunni.
N O R R Æ N T T E N G S L A N E T U M N Á M
F U L L O R Ð I N N A
Norrænt tengslanet um nám fullorðinna (NVL) er starfrækt á
vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. FA hefur vistað NVL á
Íslandi frá upphafi. Samningur er í gildi til loka ársins 2017
og gegnir Sigrún Kristín Magnúsdóttir starfi tengiliðs fyrir
Íslands hönd.
NVL móðurnetið hefur fyrstu sex mánuði ársins haldið
þrjá sameiginlega fundi. Fulltrúi Íslands sótti þá alla. Stjórn-
endur þeirra stofnana sem vista NVL á Norðurlöndunum,
ásamt fulltrúum landanna í sérstökum verkefnum sem lúta
að fræðslu fullorðinna á vegum Evrópusambandsins sátu
einnig fund í Helsinki í mars. Fulltrúi Íslands hefur umsjón
með verkefni um færniþróun í atvinnulífinu. Að verkefninu
koma tveir hópar, fjögurra manna stýrihópur og net með 12
fulltrúum frá aðilum vinnumarkaðarins. Það sem af er ári
hefur netið haldið tvo fundi í febrúar og maí. Stýrihópurinn
hefur haldið þrjá fundi á þessu ári.
Margir fundir hafa verð haldnir til undirbúnings þriggja
ráðstefna á haustdögum 2016. Sú fyrsta verður haldin 9.
nóvember í samstarfi við FA, Rannís, Euroguidance, EPALE og
Erasmus+. Ráðstefnan markar upptakt að tengslaráðstefnu
á vegum Erasmus+ og verður þar fjallað um hvernig hægt
er að beita náms- og starfsráðgjöf til þess að ná til þeirra
sem minnsta menntun hafa i ljósi evrópskrar stefnu um nýja
hæfni (New Skills Agenda for Europe). Arnheiður Gígja Guð-
mundsdóttir og Fjóla María Lárusdóttir hafa ásamt fulltrúa
NVL komið að undirbúningi ráðstefnunnar og hafa haft milli-
göngu vegna tveggja aðalfyrirlesara á ráðstefnunni.
Í undirbúningi er námskeið fyrir leiðbeinendur/kennara
í fullorðinsfræðslu sem Kennslufræðimiðstöð FA, Námsbraut
um nám fullorðinna við Menntavísindasvið HÍ og NVL munu
standa fyrir 1. desember 2016.
U M H Ö F U N D I N N
Sveinn Aðalsteinsson er framkvæmdastjóri Fræðslumið-
stöðvar atvinnulífsins.
A B S T R A C T
The year 2016 was the fourteenth operating year of the Edu-
cation Training and Service Centre (ETSC) and the sixth year
that its work is based on the Adult Education Act No. 27,
31 March 2010. According to the law, the ETSC target group
are those adults on the job market who have not completed
formal secondary school education. The aim of the ETSC is
to offer this group an opportunity to add to their education
or to enhance their position on the job market. Based on
the act, a service contract has been made with the Ministry
of Education, Science and Culture. The ETSC is not directly
involved with the target groups but operates through its sup-
porting parties which are the education centres and centres
of continuous education within Kvasir- the Association of
Lifelong Learning and Adult Education Centres, the centres
of the trades and of the public service, fourteen education
providers in all. According to the contract, ETSC administers
the Education Fund. In addition to the projects that the Adult
Education Act and the service contract stipulate, the ETSC
hosts the Icelandic coordinator in the Nordic Network for
Adult Learning (NVL) financed by the Nordic Council of Min-
isters and undertakes various collaborative projects linked to
the responsibilities of the centre are financed by grants.