Gátt - 2016, Blaðsíða 49
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
49
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
á tanntæknabrautinni. Í upphafi haustannar 2014 fengu kon-
urnar að vita hvaða áfanga vantaði hjá þeim í það heila svo
að þær gætu útskrifast sem tanntæknar en allar stefndu þær
að því. Sumar byrjuðu strax í fjarnámi í bóklegu greinunum
sem þær þurftu að bæta við sig ásamt því að vera í raun-
færnimatinu í þeim verklegu. Ráðgert var af hálfu skólans
að útbúa síðan hnitmiðuð námskeið í þeim verklegu greinum
sem þátttakendur tóku ekki í raunfærnimatinu.
S K O R T U R Á F J Á R M A G N I
Þegar leið að vori 2015 voru fjármunir sem höfðu fengist til
verkefnisins á þrotum. Nú voru góð ráð dýr þar sem töluvert
vantaði upp á að búið væri að meta alla áfanga sem þátt-
takendur höfðu valið. Ákveðið var að sækja um viðbótarfjár-
magn til Fræðslusjóðs atvinnulífsins þegar opnað yrði fyrir
umsóknir í september. Fræðslusjóður varð við þeirri beiðni
og um áramót 2015/2016 var búið að tryggja áframhald og
lok verkefnisins. Var ákveðið að stefna að því að raunfærni-
matinu yrði lokið í júní 2016. Eins ætlaði FÁ að vera búinn að
halda námskeiðin í verklegu greinunum fyrir vorið því nokkrir
þátttakendur voru á þröskuldi þess að útskrifast sem full-
gildir tanntæknar í maí.
S A M V I N N A N
Með samstilltu átaki allra tókst þetta. Sérstaklega ber að
þakka ósérhlífni matsaðila og þátttakenda sjálfra sem voru
tilbúnir að leggja þetta allt saman á sig, mæta í raunfærni-
mat og á námskeiðin þegar kallað var eftir því hvort sem var
um helgar eða á virkum dögum. Vinnuveitendur þátttakenda
sýndu mikinn sveigjanleika og voru tilbúnir að gefa frí úr
vinnu vegna matsins. Lagt var af stað í upphafi með að þátt-
takendur tækju raunfærnimatið utan vinnutíma en það gekk
ekki upp vegna þeirra fjölda áfanga sem metnir voru.
Matsaðilar voru tilbúnir til að leggja mikla vinnu á sig til
að ná að klára að meta alla. Þeir þurftu meðal annars að fara
vítt og breitt um landið til að meta á tannlæknastofunum
þar sem þátttakendur unnu. Meðal annars vörðu þeir frítíma
sínum til að koma við á tannlæknastofum úti á landi ef þeir
áttu leið hjá. Starfsmennt studdi eins vel við matsaðila og
þátttakendur eins og hægt var og bauð þátttakendum til að
mynda upp á sjálfstyrkingarnámskeið og stuðningsviðtöl.
F Y R I R M Y N D A R V E R K E F N I
Að mati Starfsmenntar er þetta raunfærnimatsverkefni til
fyrirmyndar þar sem Starfsmennt, matsaðilar og skólinn
lögðu allt í sölurnar til að koma til móts við þá einstaklinga
sem tóku þátt í matinu. Þess má geta að 9 konur úr hópnum
útskrifuðust sem tanntæknar síðastliðið vor. Hinar ætla sér
að ljúka náminu með tíð og tíma.
A Ð L O K U M
Það er viss áskorun fólgin í því að taka þátt í raunfærnimats-
verkefnum. Sótt er um fyrir ákveðinn fjölda þátttakenda og
áætlaðar teknar einingar/feiningar. Raunin verður oft önnur
en gert var ráð fyrir og stundum á þann veg að allt fer fram
úr áætlun. Þá getur orðið erfiður róður að ljúka verkefnum.
Það sem gerði það að verkum að það tókst að ljúka þessu
verkefni með glæsibrag voru einkum sterkt fagfélag (FTAT)
sem studdi vel við verkefnið, áhugasamir þátttakendur, fórn-
fúsir kennarar (matsaðilar), jákvæður framhaldsskóli, öflugt
utanumhald og skjót viðbrögð fjármögnunaraðila (Fræðslu-
sjóður atvinnulífsins). Ef allt þetta er til staðar er gaman að
takast á við áskoranir vitandi það að allir leggjast á eitt til að
allt gangi upp.
U M H Ö F U N D I N N
Sólborg Alda Pétursdóttir er verkefnastjóri og náms- og
starfsráðgjafi hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt. Hún lauk
B.Ed .-prófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1985 og námi í
Náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 1992.
Hulda Anna Arnljótsdóttir framkvæmdastjóri Starfsmenntar afhendir viðurkenningarskjöl og rósir til
þátttakenda í tilefni útskriftar úr raunfærnimatinu.