Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1911, Blaðsíða 34

Sameiningin - 01.06.1911, Blaðsíða 34
126 ncegðr með sjálfan sig, valt aftrúr vagninum og féll til jarðar einsog moldarköggull. Allir, sem við voru staddir, ráku upp skellihiátr, er þeir sáu, að hættan var liðin hjá. Þá svndi það sig, hve frábærlega ósvífinn Rómverjinn var. Hann losaði um akböndin, sem hann hafði vafið utan- um sig, slengdi þeim til annarrar hliðar, sté niðrúr vagnin- um, gekk í kringum úlfaldann, leit á Ben Húr, tók til máls og beindi orðum sínum að sumu leyti til öldungsins, en að snmu leyti til konunnar: „Fyrirgefningar — eg bið ykkr bæði um fyrirgefning. Fg em Messala“-—sagði hann; „og við jörðina, hina gömlu móður vora,1, sver eg það, að eg sá ykkr ekki né úlfaldann ykkar. Að því er snertir þessa góðu menn — þá treysti eg ei til vill kunnáttu minni um of. Mér var í mun að henda aö þeim gaman, — en nú henda þeir gaman að mér. Verði þeim að góðu.“ Góðlyndislega og að því er virtist án þess að kæra sig um neitt leit hann til þeirra, er við v'oru staddir, og sam- svaraði augnaráð hans og tilburðir allir vel orðum hans. Til þess að geta heyrt það, er hann hafði frekar að segja, höfðu þeir nú hœgt um sig. En er hann þóttist þess vís orðinn, að hann hefði unnið sigr á þeim, er hann hafði styggt, gaf hann félaga sínum bending um að fara með vagninn lengra burt, þarsem honum væri óhætt, sneri sér síðan að konunni og ávarpaði hana á þessa leið: „Hinn virðulegi maðr hérna mun þér nákominn; og hafi mér ekki þegar verið veitt fyrirgefning af hans hálfu, þá mun eg því fremr kappkosta að fá hana hér eftir. Eg get mér til, að þú sért dóttir öldungsins." Hún svaraði engu. „Fögr ertu — það veit Pallas Aþena sjálf. Varaöu þig á þv'í, að Apolló kann að villast á þér og ætla, að þú sért unnusta hans, sú er hann missti. Mér er forvitni á, hvert land getr talið sér þann heiðr að vera ættjörð þín. Snúðu ekki á burt. Vopnahlé fyrir hvern mun! Sól Indlands skín í augum þínum: og í munnvikunum birtast ástar-mörk þau, sem Egyptaland hefir þar sett. I guðanna bœnum: hverf ekki, fagra mær! til hans, sem vill vera þræll þinn þar, fyrr en þú hefir auðsýnt líkn þræli þínum hér. Lát mig að minnsta kosti heyra, að þú hafir veitt mér fyrir- gefning." Þá er hér var komið, tók hún allt í einu fram í fyrir honum. „Viltu ekki gjöra svo vel að koma hingað?" — mælti hún brosandi og laut mildilega höfði að Ben Húr. „Taktu þennan bikar fyrir mig og fylltu hann“ — sagði ^ hún við hann. „Hann faðir minn er þyrstr.“

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.