Heima er bezt - 01.11.2005, Page 5
Arnheiður Guðlaugsdóttir:
Engin vísindi komast á hátt stig, nema
til séu menn sem iðka þau af hreinni
hugsanaþörf og könnunarþörf nema
til séu menn, sem spyrja ekki um
annað notagildi eða lífsgildi en lífsgildi
rannsóknarinnar sem rannsóknar, sem
efast ekki um að hver snös í klungrum
þekkingarinnar sé athugunar verð.1
Viðmælandi minn, Davíð Erlingsson, er fæddur í
skólahúsi og steig þar sín fyrstu spor. Það átti síðar
fyrir honum að liggja að tengjast skóla allan sinn
starfstíma. Hann hefur stundað fræði- og kennslustörf um
áratuga skeið en er nú kominn á eftirlaun. Davíð hefur
nýlega fest kaup á jörð norður á Ströndum og ætlar að
njóta þess að gera það sem hann langar til án þess að
þurfa að hugsa um klukkuna. Við mælum okkur mót á
þessari jörð, Broddadalsá, og hann býður mér til stofu
þaðan sem útsýni er óviðjafnanlegt. Næst er Grímsey á
Steingrímsfirði, þá Bæjarfell, Bjarnarnes og Balaíjöllin
I Sigurður Nordal 1919, s. 7.