Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 17
Auðunn Snævar skrifstofustjóri.
búa nú 2000 börn og á E1 Shaddai
barnaheimilinu eru tæplega 200
börn. Forstöðumaður á Heimili litlu
ljósanna er Samuel Motupalli. Á því
heimili starfar með honum bæði gott
og fært fólk, sem hefur tilfinningu fyrir
þörfum allra á heimilinu. Núna er verið
að vinna að því að koma upp meira
starti í Pakistan. Þórunn Helgadóttir,
stjórnarmaður og kynningarfulltrúi hjá
ABC, sem var þar í sumar, segir að þar
ríki mikil örvænting. ABC barnahjálp
hefur einnig byggt barnaheimili í
Kambódíu, byggt skólahús fyrir
forskóla, barnaskóla og hluta af
unglingaskóla í Uganda, stofnað
heimili fyrir götubörn í Chennai á
Indlandi, auk mikillar uppbyggingar
á heimili litlu ljósanna.
Gaman er að geta þess að tvö
hundruð elstu börnin af Heimili litli
ljósanna eru nú komin í vinnu eða á
samning hjá meistara.
Þeir sem starfa við ABC barna-hjálpina
vita að þeir geta ekki hjálpað öllum
heiminum en gleðjast yjir hverjum og
einum sem hœgt er að fœra aðstoð.
Bandaríska einkaleyfsskrifstofan.
Einkaleyfi á
eilífðarvél
Margir menn hafa á
ýmsum tímum glímt
við það viðfangsefni að
smíða eilífðarvél - tæki
sem gengur eða snýst
óslitið án þess að fá til
þess orku utan frá. Nú
er raunar ljóst orðið að slíkt
tól samrýmist ekki náttúruöflunum
eins og við þykjumst þekkja þau.
Einkaleyfaskrifstofur ýmissa landa
hafa hafnað fjölda umsókna sem fela í
sér slíka eilífðarorkuframleiðslu. Árið
1911 virðist hafa verið óvenjufrjótt ár
fyrir eilífðarvélahönnuði, í það minnsta
sá Bandaríska einkaleyfaskrifstofan
(US Patent Office) það ár ástæðu til
að tilkynna að ekki þýddi að sækja um
skráningu uppfinninga á þessu sviði
nema að baki væri maskína sem hefði
gengið í heilt ár. Ekki eru allir samt af
baki dottnir, því svo seint sem 1990
féll dómur - einkaleyfaskrifstofunni
í hag - í máli uppfmningamannsins
Joe Newman, eftir að stofan hafði
hafnað umsókn hans um einkaleyfi
á eilífðarvél.
Enn síðar, eða 1. nóvember sl.,
samþykkti skrifstofan einkaleyfi
(númerið er 6.960.975, ef einhver
vildi kynna sér málið nánar) fyrir
vél til að knýja geimfar
með hjálp ofurleióandi
hlífar sem breyta á
sveigju tímarúmsins hið
næsta farinu og vinna
með því gegn áhrifum
þyngdarkraftsins.
Höfundur uppfinn-
ingarinnar og leyfishafi er Boris
Volfson frá Huntington í Indiana.
Hann styðst við kenningu rússnesks
eðlisfræðings, Eugene Podkletnov,
í þá veru að hægt sé að hemja
þyngdarkraftinn með ofurleiðurum,
sem NASA sýndi um skeið áhuga
en ekki lengur.
Allt væri þetta gott og blessað ef
fræðimenn hefðu ekki bent á að þetta
tæki, ef starfhæft væri, hlyti að teljast
eilífðarvél. Telja sumir, að starfsmenn
patentskrifstofunnar hafi orðið sér
verulega til skammar, en aðrir telja
þeim til vorkunnar að vegir kennilegrar
eðlisfræði séu stundum hálir og von að
einhverjum verði þar fótaskortur. Auk
þess er bent á, að einkaleyfið muni
reynast ónothæft, og sé því enginn
skaði skeður.
Órnótfur Thorhcius tóksaman eftir pistli í Nature
10. nóv. 2005. hls. 139: „Antigravity craft slips
past patent offtcers ", eftir Philip Balt.
Heima er bezt 449