Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 46

Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 46
• • Ollum ber saman um að það hafi verið Jón Arason síðar biskup á Hólum, sem átti frumkvæðið að því að fá hingað til lands prentsmiðju og lærðan prentara. Jón Arason fæddist á Grýtu í Eyjafírði árið 1484. Lærði klerkleg fræði í klaustrinu á Munkaþverá. Var prestur bæði austur í Þingeyjarsýslu og Hrafnagili í Eyjafirði. Fluttist í Hóla í Hjaltadal árið 1520 og tók fyrst við umsjá Hólastóls og síðar biskup um 1525. Það mun hafa verið Sigurður, sonur Jóns biskups, sem sá um að útvega fyrstu prenstmiðjuna til landsins og flutti hana til Hóla að frumkvæði Jóns kringum 1530. Jón Ólafsson Grunnvíkingur telur að prentsmiðjan hafi komið hingað fyrst árið 1523, en á öðrum stað segir hann það hafa verið á árunum 1530-1532. Jón Arason átti og frumkvæðið að því, eins og fyrr greinir, að fá hingað til lands lærðan prentara. Nefndist hann Jón Matthíasson og var frá Svíþjóð og var eitthvað lærður í prentiðn. Almennt er talið að hann hafi komið hingað um 1534 og verið á Hólum fyrst í stað. Þar er talið að fyrsta bókin hafi verið prentuð sem vitað er um með vissu. Nefndist hún Brefearium Hóllense, sem mun hafa verið prentuð eftir bók sem nefndist Brevearium Nidoriense. Þessi bók er talin hafa lcomið út 1. Maí, 1534. Öllum ber saman um, að það sé eina bókin sem prentuð var hér á landi fyrir siðaskipti. Fljótlega mun Jón biskup hafa veitt Jóni Matthíassyni sem var prestlærður, Breiðabólsstað í Vesturhópi, en ártalið er ekki öruggt. Það þótti eitt af bestu prestaköllum Norðanlands á þeim tíma. Talið er að Jón hafi verið prestur þar til dauðadags árið 1567 og haft prentsmiðjuna þangað með sér frá Hólum og hún hafi verið eign hans sjálfs fyrst í stað. Ekki er mér kunnugt um að bækur hafi verið prentaðar á Breiðabólsstað, fyrr en eftir að Ólafur Hjaltason var orðinn biskup á Hólum. Hann varð sem kunnugt er, fyrsti lúterski biskupinn Norðanlands og tók við embætti árið 1551. Að hans tilhlutan voru prentaðar tvær til þrjár bækur. Nefndist hin fyrsta Passio Antónius Corvinus, talin prentuð árið 1559. Þá konr Cathecismus og þriðja bókin mun hafa verið Guðspjallabók eftir Ólaf Hjaltason biskup prentuð árið 1562. Skömmu áóur en Jón Matthíasson lést, mun sonur hans Jón hafa tekið við prentverkinu á Breiðabólsstað af föður sínum. Hann var lærður í prentiðn, annað hvort hér heima eða erlendis. Jón yngri var á Breiðabólsstað til ársins 1572, en fluttist þá í Hóla með prentsmiðjuna og hóf að prenta bækur þar. Þá var Guðbrandur Þorláksson orðinn biskup á Hólum, sem kunnugt er, en áður var hann prestur á Breiðabólsstað, eftir að Jón Matthíasson lést. Um 1587 átti Guðbrandur biskup prentsmiðjuna einn og kostaði hann að mestu prentun bóka sinna upp frá því. Eins og flestum mun kunnugt, þá stóð Guðbrandur biskup fyrir miklu prentverki og bókaútgáfu um sína daga. Nokkurn styrk félck hann frá konungi til þessa, og 5. marz 1578 gaf konungur út tilskipun um að Jón Jónson prentari fengi til ábúðar afgjaldalaust konungsjörðina Núpufell innarlega í Eyjafirði. Það skilyrði var sett af hálfu konungs að Jón prentaði á Núpufelli þær bækur, sem biskup óskaði. Var Núpufell lengi síðan ábýlisjörð prentara Hólabiskups og samkvæmt konungsbréfí 22. apríl 1635 var þessi afgjaldalausa ábúð á Núpufelli enn endurnýjuð. Eins og fyrr segir var prentsmiðjan flutt í Hóla árið 1572 og þar var hún til ársins 1589, en það ár mun hún hafa verið flutt í Núpufell í fyrsta skipti, enda þótt konungur heimilaði prentaranum að búa þar löngu fyrr. Sannanlegt er að, prentsmiðjan var á Hólum í ársbyrjun árið 1589, því þá var Sálmabókin prentuð þar, en síðar á árinu var hún flutt til Núpufells. Fyrsta bókin var prentuð á Núpufelli árið 1589 og nefnist Summaria yfir Nýja-Testamenti eftir einhvern Theodorus. Arngrímur lærði kemst að þeirri niðurstöðu að prentsmiðjan hafí verið á Núpufelli frá árinu 1589 til 1593 eða 94. Jón Jónsson bjó þar á þessum árum eins og fyrr segir og sannaðist prentun bóka þar. Arið 1594 var prentverkið aftur flutt í Hóla og mun Guðbrandur biskup hafa keypt hlut Jóns í því. Eftir það mun það aldrei aftur hafa verið flutt til Núpufells. Flestum ber saman um, að aldrei hafí verið prentaðar nema þrjár til fjórar bækur á Núpufelli í allt. Búið er að nefna Summriu yfír Nýja-Testamentið er var prentuð árið 1589, en tveimur árum síðar var prentuð Summariia yfír Gamla-Testamenti. Talið er líklegt að tvær aðrar bækur hafí verið prentaðar á Núpufelli á þessum árum, önnur bókin mun hafa verið Lögbók, en hin nefndist Apologi, lítill bæklingur, og er Guðbrandur biskup sagður vera höfundur hans. Telja verður ólíklegt að fleiri bækur hafí verið prentaðar á Núpufelli. Jón Jónsson var þessi ár að mestu leyti á Núpufelli, en jafnvel er talið að nær daglegar feróir hafí verið inilli Hóla og Núpufells með letur og prófarkir á meðan verið var að prenta þessar bækur. Erfítt er að geta sér til um, hvers vegna prentsmiðjunni var valinn staður um tíma svo langt frá biskupssetrinu, þar sem höfuðstöðvar prentverksins og bókaútgáfunnar var um mörg ár. Sumir telja reyndar að prentsmiðjurnar hafí verið tvær, á sínum hvorum staðnum. Þetta er þó erfítt að sannreyna, og verður að telja fremur ólíklegt. Benda má á, að ekki er sjáanlegur neinn munur á letri á þeim bókum er sannanlegt er að voru prentaðar á Hólum og Núpufelli á þessum árum. Niðurstaðan verður því sú, að prentsmiðjan hafí verið ein og flutt í Núpufell frá Hólum og verið þar í mjög skamman tíma. Núpufell í Eyjafírði kemur því harla lítið við sögu á fyrstu áratugum prentaldar hér á Islandi, og þessi bær kemur ekki inn í prentsöguna fýrr en mörgum áratugum eftir að fyrst var farið að prenta bækur hér á landi. 478 Heimaerbezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.