Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 6
og í góðu skyggni sést allt norður til Kaldbaksvíkur. Að
sögn Davíðs var það draumur að jörð sem hann festi
kaup á, lægi að sjó. Hér er ijaran við fætuma og fuglalíf
margbreytilegt og hægt að vakna við kyrrðina sem er
engu lík. Davíð hefur nýlega keypt sér gamlan, traustan
jeppa svo færð hindri hann ekki í að komast norður á
Strandir þar sem veður geta oft verið válynd að vetrinum.
En hvaðan er hann upprunninn og hvað dregur þennan
heimsmann úr borginni í fámenna sveit?
Uppvaxtarár í Eyjafirði
„Ég er fæddur 23. ágúst 1936 í Alþýðuskólanum, eins
og hann hét þá að ég held, á Laugum í Reykjadal þar sem
foreldrar mínir störfuðu þá og faðir minn var ráðsmaður
og kennari en móðir mín ráðskona í mötuneyti skólans.
Foreldrar mínir voru Katrín Kristjánsdóttir, Suður-
Þingeyingur frá Rauf eða Eyvík á Tjörnesi (1907-2005)
og Erlingur Davíðsson frá Stóm-Hámundarstöðum á
Árskógsströnd (1912-1990). Hann varð síðar ritstjóri
Dags og rithöfundur á Akureyri.1 Við emm fjórir bræð-
urnir: Jakob Kristján og Sigfús Karl, tvíburar fæddir árið
1939 og yngstur er Bergur fæddur 1943.2
Fyrstu þrjú ár ævinnar átti ég heima á Laugum en síðan
varó ég Eyfírðingur og hef eiginlega verið Eyfirðingur
alla tíð síðan. Við fluttum í Klauf og síðan í Brúnalaug í
Öngulsstaðahreppi sem nú er í Eyjaljarðarsveit. Þar áttum
við heima fram á fermingarár mitt en þá var enn flutt og
nú að smágrasbýlinu Melum, sem var upp í brekkunni
ofan við þar sem nú er flugvöllurinn á Akureyri. Þetta var
hins vegar fyrir daga hans eða árið 1950. Ástæðan fyrir
flutningi okkar í Öngulsstaðahrepp var sú að foreldrar
mínir ráku almennt bú með kornræktartilraunum að
Klauf, síðar tóku þau að sér að reka garðyrkjustöð fyrir
Kaupfélag Eyfirðinga í Brúnalaug sem er í sömu sveit.”
Lífssögur og sjálfsmyndir fólks
„Fyrir 1950 fór faðir minn að starfa sem afgreiðslu-
maður og auglýsingastjóri hjá vikublaðinu Degi á
Akureyri. Síðar var hann lengi ritstjóri blaðsins. Þar
fyrir utan gerðist hann líka rithöfundur, ekki þó af
skáldskap mikið en hann var mikilvirkastur sem ritari
æviminningaþátta sem hann tók eftir fólki. Bóka-
flokkurinn „Aldnir hafa orðið” er fyrirferðamestur af því
en ýmislegt fleira skrifaði hann. Þær bækur voru eiginlega
uppdráttur lífsmynda byggðar á samtölum við fólk, seni
hann vann framan af samtímis því að hann ritstýrði Degi,
en blaðið var þá farið að koma út oftar en vikulega. Faðir
minn lést frekar ungur maöur rétt rúmlega sjötugur en
kenndi nokkru áður heilsubrests, hætti ritstjórn en hélt þó
áfram að skrifa bækur.“
Davíð segist aðspuröur hafa líkt og faðir hans áhuga á
fólki en þó meö öðrum hætti.
„Hann leit á þetta sem sagnfræði, hann var að bjarga
hlutum þannig að þeir glötuðust ekki, ég hef þá sömu
1 Æviskrár MA-stúdenta 1990, s. 60-61.
2 Samtíðarmenn 1993, s. 578.
Frumrannsókn heims að hejjast: reita grös og rísa upp.
Myndin er tekin á Jyrsta œviárimi 1937.
hugsjón líka. Hann endurvarpaði lífssögum sem voru
sjálfsmyndir fólksins, eins og það hafði komið þeim til
skila til hans, en dálítið stílaóar upp en hann var að ég
held, afskaplega heiðarlegur. Hann breytti ekki mynd-
unum, sjálfsmyndin var frá viðmælandanum en ef til vill
orðin meira við alþýðuskap."
Skólanum skipt milli inn- og útsveitar
Hefur þú einhvern tíma haft raunverulegan kennara?
Kennara sem leit á þig sem dýrmætan efnivið,
gimstein sem mætti slípa til með visku svo að
hann skini. Efþú ert svo heppinn að hafa ratað
til slíks kennara þá muntu fmna leiðina til hans afturf
„Ekki veit ég hvort þetta getur átt við mig en það var
prýðilegt að alast upp í Öngulsstaðahreppi. Það var
fjörugt líf í litla barnaskólanum á Munkaþverá. Þarna var
dálítill hópur nemenda, á milli 10 og 20 krakkar. Fyrstu
árin sem ég var í bamaskóla var svona farandskipulag á
þessu, þá var skólanum skipt milli inn- og útsveitar og
sérstakur farkennari sá um kennsluna. Síðan var byggður
barnaskóli að Laugalandi og þar var ég síðustu vetur
barnaskólanáms. Eftirminnilegasti kennari minn þar
var Árni Rögnvaldsson frá Dæli í Skíðadal. Hann lést
síðastliöið haust á Akureyri. Hann var mér eftirminnilegur
fyrir margra hluta sakir og sambandið við hann slitnaði
3 Albom, Mitch 2000, s. 189.
438 Heima er bezt