Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 38

Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 38
ástand hans. Auk þess var hesturinn blindur á hægra auga og vætlaði vökvi úr tóftinni og þeim leifum af auganu, sem eftir var. Reyndi hann af veikum mætti að verja sig íyrir manninum, þegar komið var þegjandi að blindu hliðinni og seilst í hökuskeggið. Brá hann þá eins hart við og kraftar leyfðu, til að slá með báðum afturfótum, lét annars duga vinstri afturfót ef hitt heppnaðist ekki. Þegar tókst að komast að honum án þess að fá högg í þessu ástandi, þurfti að slá mélinu á beislinu upp í hann, svo fast beit hann tönnunum saman. Þrátt fyrir þetta allt komst Jarpur alla leið og má segja að það hafi verið þrekvirki af hans hálfu. Ekki var mögulegt að ætla klámum að vera á útigangi um veturinn, eins og ástand hans var. Hann var því fljótlega tekinn á hús og reynt að koma á hann holdum, sem tókst. Vom reiðhestar okkar feðga hafðir með honum. Lengi vel hélt hann uppteknum hætti með að verja sig fyrir manninum, ef komið var í námunda við hann, þó ekki væri reynt að ná honum eða beisla. Var sami háttur hafður á við Jarp og aðrar skepnur á heimilinu, að tala við þær með nafni. Það hafði þau áhrif að smám saman lagði hann það af að verja sig með höggi íyrir heimilisfólkinu, svo óhætt var að koma að blindu hliðinni, óhikað, og beisla hann. Hann hætti líka að bíta tönnum saman af slíku afli sem hann gerði áður, þó af veikum mætti væri. En varasamur var hann alla tíð gagnvart ókunnugum. Þá vora gamlir taktar í algleymingi, en betri aðstæður til að nota þá. Ekki hafði Jarpur mikla krafta til að státa af, eftir þær hörmungar sem fyrr er líst og hlífði sér fremur við drátt, þar sem aðstæður voru erfiðar. En þegar fram í sótti fór hann að þjóna húsbændum sínum af meiri krafti. Þegar erfiðast var, var honum hjálpað eftir föngum, ýmist með því að ýta á eða toga í með honum. Eftir slík átök titraði hann allur og skalf eins og strá í vindi. Fékk hann þá jafnan að stoppa og jafna sig aðeins, þó ekki væri hann spenntur frá ækinu. Var þá oft stungið upp í hann einhverju matarkyns, sem hann kunni greinilega vel að meta. Eftir svona stopp fór Jarpur ævinlega sjálfur af stað, því ekki voru stoppin of löng hjá honum. Er frá leið og hann komst í meira jafnvægi, kom það æði oft fyrir að hann lagði hausinn eða vangann á öxl þess, sem var að ná í hann til brúkunar, og lygndi þá heila auganu aftur. Þó að við feðgar hefðum vissar grunsemdir uppi um það, hvernig á þessu ástandi Jarps var háttað í upphafí, var það látið liggja óbætt hjá garði, af okkar hálfu. Að lokum skal þess getið, að þegar Jarpur var felldur, þá orðinn lúinn, enda um 14-16 vetra, en tvö síðustu árin fékk hann að ráða sér að mestu sjálfur, var honum tekin gröf á hóli einum í túninu á Krossi, við hlið tveggja reiðhesta föður míns. Leikendur sitja í hring og spyr hver maður sessunaut sinn til hægri: „Til hvers er ég best hæfur?“ En sessunaut sinn til vinstri spyr hann: „Hvers vegna?“ Báðir hvísla svörunum í eyru honum, án þess aðrir heyri. Þegar allir hafa skipst á spurningum og svörum, birtir hver einstakur svör þau er hann hefur fengið, og geta þau hittst meira og minna einkennilega á. Einn segir ef til vill: „Eg er best hæfur til að vera ráðherra, - af því að ég er svo latur.“ Annar: „Ég get helst verið bílstjóri, - af því að ég er litblindur.“ Þriðji: „Ég væri ágætur forstjóri, - vegna þess að ég er svo guðhæddur.“ Fjórði: „Ég er bestur í lögregluþjónsstöðu, - vegna þess að mér þykir skolli gott í staupinu,“ o. s. frv., o. s. frv. Á ferðalagi Leikendurnir sitja í hring. Stjómandinn rís upp og vekur athygli manna á því að þau séu nú öll að leggja af stað til Reykjavíkur, Akureyrar eða einhvers annars staðar. Hann biður nú hvem einstakan að nefna einhvem einn hlut, lifandi eða dauðan, sem hann hafi meðferðis á ferðalagi þessu. Verða þeir, sem spurðir eru, að leysa úr því samstundis. Því næst spyr stjórnandinn þann fyrsta: „Hvað ætlar þú að gera með þetta í Reykjavík?“ Hinn á að svara með heilli setningu og nefna í henni það sem hann ætlar sér að hafa meðferðis. Allir hinir verða síðan, um leið og þeir eru spurðir, að endurtaka þessa sömu setningu, en skjóta þó sínum hlut inn í. Dæmi 1: Sá fyrsti ætlar að hafa bílinn sinn, annar sparibuxumar sínar, þriðji tengdamóður sína. Sá fyrsti svarar auðvitað: „Ég ætla að aka bílnum mínum.“ Annar: „Ég ætla að aka sparibuxunum mínum.“ Þriðji: „Ég ætla að aka tengdamóður minni.“ Dæmi 2: A ætlar að hafa með sér peninga og segir: „Ég ætla að leggja peningana mína inn í banka í Reykjavík.“ B: „Ég ætla að leggja hundinn minn inn í banka í Reykjavík.“ C: „Ég ætla að leggja kærustuna mína inn í banka í Reykjavík,“ o. s. frv. Til þess aó leikurinn geti orðið skemmtilegur, verða 470 Heimaerbezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.