Heima er bezt - 01.11.2005, Page 15
Þórunn Helgadóttir með stúlkunum.
Auðunn Snævar Ólafsson,
skrifstofustjóri
Auðunn Snævar Olafsson er eini
maðurinn sem er á launum hjá ABC.
Hvernig það vildi til að Auðunn kom
inn í starfið, er líkt og æðri máttarvöld
hafi átt þar hlut að máli. Þegar átti að
fara að flytja skrifstofuna frá Sóltúni 3
í Síðumúla 29, vantaði fólk til að vinna
við flutningana. Guðrún Margrét hafði
samband við vinkonu sína og spurð
hvort hún vissi um einhverja sem vildu
aðstoða. Gunnhildur Höskuldsdóttir
kom strax upp í hugann, hún mætti
með bónda sinn, Ólaf Ögmundsson
og hóp af vinum og vandamönnum.
Flutningarnir gengu fljótt og vel fyrir
sig. Þau hjón Gunnhildur og Ólafur
gerðu meira fyrir ABC barnahjálpina
en aðstoða við að tlytja, í dag eru þau
með ötulustu sjálfboðaliðum.
Það lá fyrir að það þyrfti að ráða
skrifstofustjóra til ABC barnahjálpar.
Það gerðist að sonur Gunnhildar og
Ólafs, Auðunn Snævar, var laus úr starfi
sama dag og ABC barnastarfið þurfti
á honum að halda. Guðrún Margréti
sá að þarna var maðurinn sem hún
var að leita að í stöðu skrifstofustjóra.
Auðunn Snævar er með menntun
í félagastjórnun frá Svíþjóð, klár í
tölvum og tungumálum, auk þess afar
vinnusamur. Samfara flutn-ingnum var
verið að taka upp nýtt tölvukerfí, sem
gefur betri yfirsýn og mun auðveldara
er að fylgjast með öllum færslum.
Hjónin Guðrún Margrét og Hannes sitja og fylgjast með mótökuhátíð þeim til
heiðurs.
Framtíðarstefna er að
setja upp netmyndavélar
svo að stuðnings-
foreldrar geti haft
beint samband við
börnin sín. Þetta er
hugsað til að koma
á meira persónu-legu
sambandi.
Ekki má gefa einu
barni stórar gjafír,
ekkert sem verður til
þess að gera mismunun.
En stuðningsforeldri ma
gefa sínu barni eitthvað lítið,
sem gleður.
Nýárskveðja til
Guðrúnar, rituð á
fallegt blað!
NOKKRARSÖCUR ÚR
STARFINU
Annan dag jóla 2004 lögðu hjónin
Guðrún Margrét og Hannes Lentz
af stað til Indlands að heimsækja
Heimili litlu ljósanna og E1 Shaddai
barnaheimilið, en bæði þessi barna-
heimili voru eingöngu stofnuð
með styrk frá ABC barnahjálpinni,
sem einnig sér um rekstur þeirra.
Hjónin vildu sjá hver árangurinn
væri af hjálparstarfinu og hvernig
peningarnir væru nýttir. Þau urðu
ekki fyrir vonbrigðum því að þarna var
allt til fyrirmyndar og vel farið með
þá peninga sem þangað eru sendir.
Það var áhrifamikið fyrir Guðrúnu
Margréti og Hannes að sjá öll
þessi yndislegu börn, sem
komu saman til að fagna
velunnurum sínum. Miklar
byggingarframkvæmdir
hafa staðið yfir í
sumar á Heimili litlu
ljósanna, en verið
er að byggja betra
húsnæði fyrir 800
drengi á heimilinu
fyrir fé úr síðustu
söfnun.
Heimili litlu ljós-
anna hefur 2000 böm
Heima er bezt 447