Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Qupperneq 24

Heima er bezt - 01.11.2005, Qupperneq 24
Af hrútum Ásæknar verða minningamyndimar þegar ört á ævina líður. Misjafnar eru þær í muna manns, þó þær Ijúfu og heiðríku ráði oftast för. Sumar geyma gömul samvizkubit, sem sækja að á hljóðum stundum og frá einu þeirra nokkuð greint hér. Það var síðla í október og allt nær autt langleiðina upp á efstu tinda. Það kom sér líka vel því stórframkvæmdir stóðu yfír í fjárhúsunum heima, þar var verið að setja grindur undir féð og þótti heldur betur til framfara horft. Þeir faðir minn og Gísli frændi minn, unnu baki brotnu við þetta og þegar ég kom heim frá kennslu á daginn, lagði ég þeim lið eftir mætti. Það var þannig að allt féð var heima við í girðingu svo sem var löngum á haustin, þó áreiðanlega hafi það verið mjög vafasamur gjömingur bæði fyrir skepnur og tún sem úthagann innan girðingar. En þarna átti þetta eftir að verða til góðs svo sannarlega. Eftir síðustu göngur var allt okkar féð komið að, þ.e. allar ær og lömb, en okkur vantaði þó fullorðnu hrútana okkar þrjá og höfðum þó frétt af þeim frá rjúpnaskyttum, að þeir væru uppi undir eggjum efst á Sléttadalnum. Vegna framkvæmdanna heima hafði enginn tími unnizt til að sækja hrússana og það var áhyggjuefni, því eftir spánni gat brátt verið allra veðra von, þó ekki hefði okkur órað fyrir því að svo skyndilega skyldu veður skipast í lofti, sem raun bar svo vitni. Kona mín var þessa daga með börnin okkar hjá móður sinni á Fáskrúðsfirði og til stóð svo að sækja hana strax og framkvæmdum væri lokið í fjárhúsinu. Á sunnudegi sá fyrir endann á verkinu og síðdegis lagði ég af stað á Rússajeppanum góða, til Fáskrúðsíjarðar að sækja þau, en þá var spáin orðin anzi slæm og raunar orðið snjólegt einnig strax um morguninn, svo það var nokkur kvíði í mér varðandi ferðina. Það fór enda svo að það tók að malla niður seinnipartinn og þegar við hjónin lögðum af stað frá Fáskrúðsfírði var kominn talsverður snjór og efst uppi í Staðarskarði var farið að drífa í skafla og síðustu brekkuna rétt höfðum við upp, enda hafði ég í flýtinum og snjóleysinu gleymt að taka með mér keðjur heiman að. Sem betur fer var nær logn eftir að komið var af skarðinu en snjókoman jókst stöðugt og þegar komið var inn fyrir Götuhjallann byrjaði lausamjöllin nokkuó að íjúka og mynda smáskafla, en heim komumst við heilu og höldnu og enn er mér minnisstæður veðurgnýrinn um kvöldið, enda vorum við ekki löngu búin að festa blund þegar skall á með stormi svo í öllu hvein. Rokið var til og það fé hýst sem að húsum var komið og í kallfæri var einnig, en ekki tök á meiru. Minnisstætt er mér hve féð var skelkað við þessa nýju framkvæmd í tjárhúsinu og þótti engum mikið en veðurhamurinn rak á eftir því inn, svo meginhluti fjárins var í hús kominn og langflest það sem úti var hafði skilað sér heim um morguninn. Þá var komin hin versta ófærð og ég varð að skilja bílinn eftir og ganga í skólann og varð þó auðvitað of seinn fyrir í mikilli kafaldsófærð þessa þrjá kílómetra. Og enn geisaði stormurinn og einnig seinnipartinn, þegar maður hafði hann í fangið heim, en þá var að vísu búið að ryðja inneftir, mestalla leiðina a.m.k. Það var svo fyrst tveim dögum seinna sem við faðir minn fórum að leita hrútanna og gengum alla leið upp allan Sléttadalinn og vorum aó lokum orðnir úrkula vonar um að finna þá þegar við sáum þá alla þrjá, fannbarða vel, standandi í höm uppi á barði einu allofarlega í hlíðinni í skjóli af stórum steini. Og nú hófst heimferðin eftir að við höfðum reynt eftir föngum að skera burt mestu snjókleprana og hrútamir raunar svo dasaðir, að við sáum fljótlega fram á það að erfitt myndi takast að koma þeim þessa á að gizka 5-6 kílómetra til bæjar. Við faðir minn skiptumst á um það að troða slóð og seint sóttist ferðin, en undan nokkrum vindi var þó farið, ófærðin víðast engu lík og erfíðastir reyndust lækjarskomingar margir á leið okkar og sumir þeirra bakkafullir af lausamjöll og skefli í bland og erfitt oft að átta sig á um hvort væri að ræða, lausamjöllin sýnu erfiðust þó, svo þétt sem hún annars var. Það húmaði fljótt og við vorum orðnir býsna þreyttir, enda búnir að kafa snjóinn í a.m.k. 6 klukkutíma. Við náðum þó loks niður úr Sléttadalnum og þar voru skorningamir hvað verstir og þéttastir, en hrútamir greinilega enn þreyttari en nokkum tímann við og höfðum við þó orðið að hálflyfta þeim upp á bakka sumra skorninganna á leiðinni, öllum þrem, og þeir voru svo sannarlega vænir vel. Þegar komið var efst í svokallaðar Svæður inn af Grjótgörðunum sem við svo köllum, var ófærðin þar sýnu mest og nú færöumst við svo sannarlega hægt yfir foldina. Eðlilega höfðum við þó reynt að fara þar sem eitthvað hafði blásið af, þarna á Svæðunum var því einfaldlega ekki til að dreifa, allt í botnlausri ófærð. Hrútarnir rétt mjökuðust áfram og nærri komið myrkur, við orðnir örþreyttir, en ég, sem þó var vel innan við þrítugt bar mig sýnu verr en faðir minn, sem þá var kominn yfir sextugt, enda sannkallað þrekmenni. Helgi Seljan: 456 Heima er bezt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.