Heima er bezt - 01.11.2005, Page 28
stuttan spöl norður til Milwaukee,
en þar var smjörið lestað á þremur
dögum. Meðan á því stóð nutu
skipverjar mikillar gestrisni fólks af
þýskum ættum, er sest hafði þama
að á fyrrihluta 20. aldarinnar og
einnig Iaust fyrir aldamótin 1900.
Skipverjar á Foldinni fengu sama
góðviðri og Vatnajökulsmenn.
Þama á vatnasvæðinu ríkir að
nokkru meginlandsloftslag og
liggja samgöngur oftast niðri
vetrarmánuðina frá nóvember til
apríl, vegna ísilagðra vatnanna.
Frá Milwaukee hélt Foldin svipaða
leið til baka, að öóru leyti en því, að
ekki var farið niður eins mörg þrep
skipastigans eins og á uppleiðinni
Ingólfur Möller.
að sigla upp 22 þrep í fyrsta
áfanganum inn á Ontaríóvatnið,
en þaðan lá leiðin um Welland-
skipastigann til Erie-vatns, sem er í
meira en 300 fetum yfir sjávarmáli.
Það var því ekki lítil samgöngubót
þegar skurðurinn var gerður, á
fyrri helmingi 19.aldar, var hann
upphaflega í 26 þrepum og 40-50
km. á lengd og síðan
mikið endurbættur.
Vatnajökull sigldi
hann í sjö þrepum.
Þama á næsta leiti
eru N iagara-fossarnir,
en hæð bar á milli
svo að þeir sáust ekki
frá skipinu. Síðan tók
hvert vatnið við af
öðru uns komið var á
ákvörðunarstað.
Skipverjum á
Vatnajökli fannst Ontario-vatn.
siglingaleiðin falleg
og mikil veðursæld
um þetta leyti á öllu vatnasvæðinu.
Náttúmfegurð er þarna víða mikil.
Skiptist á gróðursæld, berir klettar og
víðáttumiklir skógar, þar sem há fjöll
gnæfa yfír í ijarska.
Eins og áður segir flutti Vatnajökull
smjörfarminn til Napolí á Italíu og
til hafnarborgarinnar Trieste við
Adríahaf. Þaðan var siglt til Spánar,
lestað salt, ávextir og laukur heim
Michigan-vatn.
til íslands. Fyrst
var saltið losað á
AustQörðum, Stöð-
varfirði, Djúpavogi
og Homafirði, en
til Reykjavíkur
kom skipið þann
9.október, eftir
þriggja mánaða og þriggja daga
útivist. Af ferðalagi Foldarinnar er
það að segja, að skipið hóf ferðina
frá Rotterdam í Hollandi með farm
af bílastáli til Chicago, en þaðan
kom skipið þann 21 .ágúst og hafði
mætt Vatnajökli á St. Lawrence-
fljóti. í Chicago var þriggja daga
viðstaða meðan stálfarmurinn var
losaður. Að því loknu var haldið
460 Heima er bezt