Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Side 31

Heima er bezt - 01.11.2005, Side 31
að kaupa vél í bátinn sinn. Þó voru tii nokkrir sem höfðu keypt vél í bátinn og það var aldeilis sjón að sjá þá sitja í skut eins og steingervinga, starandi fram fyrir sig með báðar hendur á stýrissveifmni. Eg eyddi talsverðum tíma í að horfa á karlana skipa upp aflanum og gera að honum. A vorin var það rauðmagi og grásleppa, á sumrin ýsa og þyrsklingur. Við aðgerð á grásleppunni voru innyflin og gotan látin gossa í Qöruna. Þá var þetta verðlaus vara. Seinna snerist það við; gotan varð að verðmætri útflutningsvöru, en grásleppan svo verðlítil að henni var stundum hent aftur í sjóinn. Ég útbjó mér færi eftir að hafa lagt á minnið hvernig stóru strákarnir gerðu, náði mér í rauðmagalifur fyrir beitu og veiddi sandkola, smáufsa og marhnúta. Frekjan í marhnútunum var mikil, þeir gleyptu öngulinn, auðvitað í óleyfl, en sandkolann gat ég stundum selt á hálfan eyri stykkið. Fyrir peningana keypti ég lakkrís og brjóstsykur. Það liðu dagar og ár en við áttum samleið; hafið og ég. Fyrsta veiðiferðin Þegar grásleppukarlamir voru að gera að aflanum, vakti það áhuga minn að gramsa í slorinu, ég henti stykkjum af lifur upp í loftið fyrir krummana og kríurnar. Það var gaman að sjá fuglana grípa fæðuna á lofti og rífast svo um hana, enginn biti féll til jarðar. Þá var nú líf í tuskunum, kannski á það betur við að segja: Þá var nú íjör í fjöðrunum. Mér hefur alltaf þótt vænt um kríuna, þótt hún sé hávaðasöm. Seinna, þegar ég fór sjálfur að gera að físki, settist oft kría á öxlina á mér, reyndar með dálitlum brögðum, ég setti nefnilega smástykki af lifur á öxlina, sem kríurnar hirtu og voru aldeilis óhræddar. En hvað sem kríunni líður þá var ég ákveðinn í að gerast grásleppukarl þegar ég yrði stór. Þar kom að ég varð sjö ára og bjó þá til færið góða. Eftir nokkurt suð og rellur fékk ég peninga til að kaupa öngul og að auki leyfi til að fara niður á bryggju, með því skilyrði að ég passaði mig á að detta ekki í sjóinn. Ég var tljótur að lofa því, af bryggjunni dytti ég ekki í sjóinn - og þó. Ég datt ekki í sjóinn, ég flaug. Gamali maður sparkaði mér langt út á sjó. Reyndar var það ekki meining hans að ég endaði í sjónum, þetta var óviljaverk. Astæðan var sú að hann kom niður á bryggju og sá að strákar voru að ólmast í kærustunni hans. Fiann öskraði á þá svo þeir tlýttu sér upp úr kænunni, þar sem leikurinn fór firam, og hlupu upp bryggjuna. Mér sýndist karlinn svo æstur að ég tók líka á sprett upp bryggjuna, yst á kantinum. Af einhverjum misskilningi hélt karlinn að ég væri einn af óþekktarormunum og sparkaði í rassinn á mér um leið og ég hljóp framhjá honum. Ég flaug langt út á sjó með sprikli miklu og orgi og þar að auki gleypti ég nokkra gúlsopa af hafínu. Ég skyrpti jafnharðan, bragðið var jafnvont og forðum, þegar ég saup úr dósarlokinu. Það tókst farsællega að draga mig upp úr sjónum en bryggjuleyfið mitt var umsvifalaust afturkallað. Það kom ekki að sök, ég fór bara í óleyfí. Þegar veður leyfði, notaði ég hverja stund til að veiða. Brátt fór ég að bera veiðina heim sem nýtilega átu. Við þetta spöruðust nokkrir peningar vegna matarinnkaupa, svo ijölskyldan veitti mér bryggjuleyfíð aftur, mér til mikillar ánægju. Ég var einstaklega fískinn og dró miklu meira en heimilið hafði þörf fyrir. Ég tók því það ráð að ganga í búðir og bjóða sandkola til sölu. Það voru þó bara stærstu kolarnir sem ég bauð, hinum smærri gaf ég líf. Ég hugsaði sem svo, að þeir ættu eftir að stækka og þá gæti ég veitt þá aftur. Þetta mættu nútímasjómenn athuga, sem henda öllum físki, smáum og stórum, lifandi eða dauðum, í hafið aftur, þegar hann passar ekki í vinnsluna. Sömuleiðis mætti sjávarútvegsráðherra gefa þessu máli hugsun og breyta lögunum til betri vegar. Ég fékk nokkra fasta kúnna í suðurbænum. Ég bauð þeim ekki kola dag eftir dag, fann fljótlega út hvenær mér var óhætt að koma með aflann minn. Ég vaknaði misjafnlega snemma á morgnana en það var alltaf mitt fyrsta verk að gá til veðurs. Ef veðrið var óheppilegt til veiða, lagði ég mig aftur þangað til ég var rekinn á fætur. Mér þótti gott að lúra á morgnana. Ef veður var hagstætt til veiða, flýtti ég mér niður á einhverja bátabryggjuna og var oft til kvölds. Veiðiáhuginn var óþrjótandi. Oft gleymdust matartímar en ég fann aldrei fyrir svengd fyrr en ég loks álpaðist heim. Þá var líka tekið hraustlega til matar síns. Ég var dauðuppgefínn eftir þessa löngu daga á bryggjunni og sofnaði eins og steinn eftir matinn. Fyrir áttatíu árum var hvorki sjónvarp né útvarp til að trufla eðlilegt og heilbrigt líf hraustra drengja. Eins og fyrr segir var ég búinn að tryggja mér kúnna víðs vegar um suðurbæinn, sem hvorki var stór né mannmargur á þessum árum. Ég átti alltaf eitthvað af aurum, bæði til að kaupa öngla og líka til að kaupa mér sælgæti stöku sinnum, til að lífga upp á tilveruna. Ég var farinn að fá tvo aura fyrir kolann ef hann var í stærra lagi. I þá daga var einn eyrir nákvæmlega einn eyrir og krónan var króna. Ein króna var mikill auður fyrir ungan strák og ef til vill fyrir fátæku verkamennina líka. A þessum tíma voru margar smábátabryggjur, ein af þeim var fyrir neðan Ishúsið. Hún var orðin léleg og hættuleg smástrákum, önnur var fyrir neðan verslun Einars Þorgilssonar, sú var í einstaklega góðu lagi, náði reyndar út að stórstreymisljöru og var mikið notuð af smábátakörlum. Næsta bryggja var niður af Linnetstígnum, hún var frekar stutt. Sú íjórða var bara smástubbur, því þar var mikið dýpi. Sú bryggja var ekki notuð nema af okkur krökkunum og var kölluð Edinborgarbryggja. Eitt sinn var kolinn nokkuð tregur, við vorum tveir Heima er bezt 463

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.